fasteignasölur.is
Tunguhella 10V
1 af 20

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Til sölu eða leigu að birtri stærð 92,1 m² geymslu-/ iðnaðarhúsnæði við Tunguhellu 10V í Hafnarfirði. Heildarflatarmál eignarinn er í dag samtals 151,6 m² og eru því óskráðir fermetrar 59,5 Laust strax!

Nánari lýsing:
Neðri hæð: Vinnusalur með stórri iðnaðarhurð (4,0 x 4,35m) með rafmagnsopnun og  inngönguhurð, kvarts epoxý á gólfi og flísar. Kaffiaðstaða með gluggum og opnanlegu fagi, 60x60 flísar á gólfi og veggjum. Skápainnréttingar með borðplötu og vaski. Skolvaskjkur og 2 hitastýrð tæki. Wc með speglaskáp, vegghengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi. Brunaútg. að aftanverðu hússins og stigi upp á efri hæð.

Efri hæð: Stálstigi upp á efri hæð og hringstigi með sér inngangi að aftanverðu. Herbergi/skrifstofa með glugga yfir vinnusal. Hurð inn í stúdíó með góðri eldhúsinnréttingu, helluborði, tau þvottavél og ísskáp, og gluggum með opnanlegu fagi. Geymslurými / herbergi með rennihurð. Baðherbergi með speglaskápi, vegghengdu salerni og sturtu. Brunútg, niður hringstiga ásamt fellistiga að utanverðu. Vinilparket á gólfi. Rými eru með loftskipti útbúnaði.

- Gólfhiti á neðri hæð, hefðbundið ofnakerfi á efri hæð.
- Skilveggir á milli eignarhluta eru byggðir úr 120mm timburgrind, c/c 60 cm er klæðist með plötuklæðningu beggja vegna; 1x 12mm spónaplötur og 1x12mm gips, hvoru megin og einangrað með 120mm steinull.
- Undirstöður og botnplata eru staðsteypt með burðarmiklum gólfum.
- Meginburðargrind hússins er úr límtré með innsteyptum festingum. Allt milliburðarvirki, þakásar er úr límtré. Allar stálfestingar eru heitgalvaníseraðar.
- Útveggja- og þakeiningar eru af gerðinni "QuadCore" frá Kingspan í Englandi.


Leiguverð: 495.000 kr. (enginn vsk) með hita og rafmagni. Leigist eingöngu saman, þ.e. efri og neðri hæð.

Um er að ræða glæsilegt bil þar sem engu er til sparað og þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
64.900.000 kr.428 þ./m²
+60,2% á 2 árum
30. desember 2024Fyrsta sala
40.500.000 kr.440 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tunguhella 10V

221 Hafnarfjörður
64.900.000 kr.428 þ./m²
Atvinnuhúsnæði2 bað
Byggingarár2025TegundAtvinnuhúsnæðiStærð151,6 m²Herbergi3InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF25328753Fasteignamat34.300.000 kr.Brunabótamat34.950.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑