fasteignasölur.is
Kuggavogur 26
1 af 33

Um eignina

Hrafnkell Pálmi kynni þessa björtu og vel skipulögðu þriggja herbergja íbúð við þetta fallega og nýlega byggða hús við Kuggavog 26 í Vogabyggð, 104 Reykjavík.  

**Steinn á borðum**
** Aukin lofthæð**
**Stórir gluggar í opnu alrými**
**Bílastæði í bílageymslu**
**Rúmgóðar svalir með möguleika á svalalokun**
 
Íbúð 201 er 86,8 fm. 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með rúmgóðum svölum 8,8 fm. til vesturs með útsýni og möguleiki á svalalokun.
Þar af sérgeymsla 6,1 fm. og eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu merkt B09.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell P. Pálmason / 690 8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS


Nánari lýsing:
Anddyrið
er með góðum fataskápum og tengist inn í alrýmið.
Opið rými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Fallegar og vandaðar svartar innréttingar í eldhúsi, góð eyja með stein á borði sem hægt er að sitja við, mikið vinnurými og skápapláss, útdraganleg eining fyrir ruslaskápinn og góðar innri skúffur. Top line heimilistæki, chef collection ofn, vönduð og góð uppþvottavél og háfur.
Stofan og borðstofan eru opin inni í eldhúsið með góðum gluggum sem veita góða birtu. Útgengt á rúmgoðar svalir til vesturs.
Baðherbergið er með fallegum svörtum innréttingum, fallegu flísum, walk in sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni og góða aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskápum. Gluggi til vesturs.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og fataskápum. Gluggi til vesturs.
Hol með parket á gólfi og tengir svefnherbergin, baðherbergið og inn í stofuna.
Flæðandi parket er á allri íbúðinni fyrir utan votrýmum.
Svalirnar eru góðar 8,8 fm. og snúa til vesturs með góðu útsýni.
Geymslan er á jarðhæð 6,1 fm.
Bílastæði merkt B09 í snyrtilegri lítilli bílageymslu sem telur 16 bílastæði í heildina.
Sameignin er öll til fyrirmyndar með vönduðu eikarhandriði.
Sameiginlegur garður ofan á bílageymslu sem er opin til suðurs og austurs. 
20 íbúðir eru í húsinu.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsið er byggt 2023 og er allt hið vandaðasta. 

Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.
 
--- Allir viðskiptavinir Lindar fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá fjölda fyrirtækja ---

 
Vogabyggð er nýtt hverfi í Reykjavík, einstök staðsetning við Elliðarárvog.
Stutt er í leik- og grunnskóla og í alla þjónustu í Vogabyggð og í Vogahverfi.
Hverfið verður heildstæð og sjálfbær eining sem einkennist af mikilli blöndu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis sem rammar inn fjölskrúðugt mannlíf, mismunandi aldurs- og þjóðfélagshópa.
Göngubrú er yfir Sæbraut við Tranavog og Snekkjuvog eflir vistvænar samgöngur milli hverfanna og eykur öryggi gangandi vegfarenda. Laugardalur og Glæsibær eru í göngufæri.
  
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
78.400.000 kr.903 þ./m²
+12,2% á 4 árum
3. mars 2023Fyrsta sala
69.900.000 kr.805 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kuggavogur 26

104 Reykjavík
78.400.000 kr.903 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð86,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF252234010Fasteignamat76.050.000 kr.Brunabótamat66.670.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑