fasteignasölur.is
Bergstaðastræti 12
1 af 9

Um eignina


Til sölu stúdióíbúð, íbúð 0102 með sér inngangi, staðsett á jarðhæð. Íbúðin skiptist í forstofu, bjart og rúmgott alrými með eldhúsi, stofu og svefnaðstöðu, rúmgóðu baðherbergi með sturtu.

Nánari upplýsingar gefur seljandi í síma 786-1200.

 

Íbúðin er með sérinngangi og gengið er inn í rúmgott, flísalagt anddyri með góðum skápum. Frá anddyrinu er gengið inn í opið og vel skipulagt alrými með eldhúsi, stofu og svefnaðstöðu.

Eldhúsið er vandað og vel útbúið, með sprautulakkaðri hvítri innréttingu, vandaðri borðplötu í steinlíki og góðum heimilistækjum. Í alrýminu er vandað harðparket á gólfum og rýmið er vel nýtt með góðri aðstöðu fyrir bæði stofu og svefn.

Baðherbergið er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf, með ljósum flísum á veggjum, dökkum flísum á gólfi og sturtu. Tenging er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu, sem er mikil þægindi í daglegu lífi.

Í kjallara er sameiginlegt þvottahús sem íbúðin hefur aðgang að ásamt sérgeymslu sem tilheyrir íbúðinni.

Húsið að Bergstaðastræti 12 var endurbyggt árið 2007 og er vandað að allri gerð. Það er einangrað að utan og klætt álklæðningu í háum gæðaflokki. Húsið hefur verið vel við haldið og er sameign þess snyrtileg. Íbúðin sjálf er einnig í góðu ástandi og hefur verið vel um hana gengið.

Staðsetningin er einstaklega góð, í hjarta Þingholtanna þar sem miðbær Reykjavíkur er í þægilegu göngufæri. Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, veitingastaðir, verslanir, kaffihús og allt það sem miðborgin hefur upp á að bjóða.

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð

Bergstaðastræti 12

101 Reykjavík
52.300.000 kr.1.115 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1934TegundFjölbýlishúsStærð46,9 m²Herbergi1InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2311706Fasteignamat48.000.000 kr.Brunabótamat24.100.000 kr.
Skráð hjá
e-fasteignir | Snjallari fasteignaviðskipti
HeimilisfangGarðabær, 210Sími/ Heimasíða: www.e-fasteignir.is

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑