fasteignasölur.is
Efstaland
1 af 58

Um eignina

Um er að ræða fasteignirnar Efstaland og Efstaland land 1, Sveitarfélaginu Ölfusi, ásamt öllu því sem þeim fylgir og fylgja skal, að engu undanskildu, þar á meðal öllum mannvirkjum, tækjabúnaði, borholu og jarðhitaréttindum ásamt félögunum Básinn, veitingastaður ehf. og Ingólfsskáli ehf. sem eiga fasteignir á Efstalandi og sjá um veitingarrekstur sem fram fer í Ingólfsskála og Básnum .
Búið er að skipta jörðinni í tvo sjálfstæða hluta en samanlögð skráð stærð eignanna er um 19-20ha
·         Efstaland (fasteignanúmer F2211337, landeignanúmer L171696): Skráð sem 6,0 ha landbúnaðarland (nýbýli í byggð) í eigu Básins, veitingastaðar ehf.
·         Efstaland land 1 (fasteignanúmer F2343522, landeignanúmer L201003): Skráð sem 13,3 ha land (opið svæði) í eigu Björns Kristjánssonar.
Efstaland (fnr. 221-1337):
Á spildunni er starfrækt umfangsmikil veitingastarfsemi í húsakosti veitingastaðarins Ingólfsskála og Básnum. Starfsemin er með gilt rekstrar- og veitingaleyfi fyrir allt að 600 manns og er mjög umfangsmikil og stöðug allt árið. Í sæti komast um 350 manns (Ingólfsskáli tekur um 220 manns og Básinn um 150 manns). Starfsfólk er um 20-25 manns á skrá og eru yfirleitt fjórir kokkar á vakt í eldhúsunum. Bókunarstaða veitingastaðarins er afar sterk og eru um 6.000 manns bókaðir nú þegar.
Húsakostur á spildunni eftirfarandi:
Mhl. 040101, Veitingahús, byggt 1966, stærð 298,4 m²
Mhl. 030101, Veitingahús, byggt 19662, stærð 46,7 m²
Mhl. 020101, Íbúð, byggt 1986, stærð 111,3 m²
Mhl. 050101, Veitingahús, byggt 1998, stærð 458,0 m²

Nánari lýsing:
Ingólfsskáli (Víkingaskálinn, mhl. 030101 og mhl. 050101): Veislusalur og veitingahús sem rúmar allt að 220 manns í sæti. Í salnum er bar, þjónustueldhús, uppvöskunaraðstaða, snyrtingar (WC) ásamt fullkomnu hljóðkerfi, myndvarpa og stóru sýningartjaldi. Salurinn er nýttur undir veitingarekstur allt árið.
Básinn (Gamla hlaðan og fjósið, mhl. 040101): Veitingasalur sem rúmar allt að 150 manns í sæti. Salurinn er samtengdur Víkingaskálanum og hægt er að opna á milli þeirra til samnýtingar í stærri veislur. Í Básnum er bar, snyrtingar og setustofa. Við salinn er tengt eldhús sem nýtist í dag sem undirbúningseldhús (prepp-eldhús) og þjónustueldhús. Eldhúsin eru fullbúin öllum nauðsynlegum tækjum til reksturs. Í vesturenda er vörumóttaka og starfsmannaaðstaða með snyrtingu.
Nýbyggt lagerhúsnæði: Um er að ræða nýlegt 115 m² rými norðan við eldhúsið sem byggt var fyrir um tveimur árum. Rýmið tengir eldhúsin saman og nýtist sem lager með frystarými og innangengum kæli.
Íbúðarhús (mhl. 020101): Einbýlishús úr timbri, 111,3 m² að stærð, byggt árið 1986, sem nýtist sem íbúð fyrir ábúanda/starfsfólk á svæðinu.
Gámar/geymsla/bílskúr: Tveir 40 fm gámar með viðbyggingu, samtals um 70 fm bygging.
Ástand bygginga: Húsakosturinn á Efstalandi er í ágætu ástandi og honum hefur verið vel við haldið. Nýtt þak var sett á hlöðuna og fjósið (Básinn) fyrir um tveimur árum

Efstalandi land 1 (fnr. 234-3522):
Engin skráð mannvirki í fasteignaskrá á jörðinni. Birt stærð er 13,3 ha. og á jörðinni er borhola.
●        Borholan gefur um 70°C heitt vatn.
●        Afköst borholunnar eru um 40 l/sek en nýting í dag nemur aðeins um 2 l/sek.
●        Jarðhitinn og afkastageta borholunnar veita verulega möguleika á frekari uppbyggingu á svæðinu, til dæmis vegna skipulags gistingar eða hótelreksturs í nágrenni veitingaaðstöðunnar.

Hægt er að fá keypt eingöngu Efstaland F2211337 og rekstur Básinn, veitingastaður ehf. (kt. 670306-1190) og Ingólfsskáli ehf. (kt. 440113-1090) sem fram fer á jörðinni.

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Efstaland

816 Ölfus
530.000.000 kr.3 þ./m²
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð194114,4 m²FasteignanúmerF22113371Fasteignamat181.867.000 kr.Brunabótamat663.200.000 kr.
Skráð hjá
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar
HeimilisfangEyrarvegi 15b, 800 SelfossSími416-2220

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 58 myndir

Upp ↑