fasteignasölur.is
Þorraholt 1
1 af 29

Um eignina

Ágúst Ingi Davíðsson löggiltur fasteignasaliMagnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: Fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 3 hæð með fallegu útsýni. 

Upplýsingar um eign: Íbúð 0301, Þorraholt 1B:
Eignin er tveggja herbergja íbúð á 3. hæð matshlutans 02, merkt 0301, birt stærð 66,7 fm.
Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara matshlutans 02, merkt 0005, birt stærð 3,8 fm.  
Birt heildarstærð séreignar er 70,5 fm. 

Bókið skoðun hjá Ágústi í síma 787-8817 eða með tölvupósti á netfangið agust@remax.is / maggi@remax.is

Nánari lýsing: 
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, innrétting undur handlaug, speglaskápur með lýsingu, upphengt salerni, handklæðaofn, innfeld tæki í sturtu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Eldhús: Parket á gólfi, rúmgott, innfelld uppþvottavél, innfelldur ísskápur, span helluborð og gufugleypir, gott skápa- og borðpláss. 
Stofa: Parket á gólfi, björt, fallegt útsýni frá stofuglugga, útgengt út á svalir. 
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, gott skápapláss. 
Geymsla: Sér geymsla í sameign. 
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginlegt innaf bílakjallara. 

Innanhússhönnun íbúðanna var á hendi Bjarka Snæs Smárasonar. Hann hefur lagt grunninn að vali á litum, efni og innréttingum sem endurspegla klassískt og látlaust yfirbragð. Litir og efnisval tryggja að íbúðirnar henti sem flestum og létti kaupendum að skapa sitt eigið heimili. 

Í Garðabæ er náttúran aldrei lagt undan. Gönguleið í kring um Vífilstaðavatn er vinsæl ásamt Heiðmörk með fjölda göngu og skógarstíga. Í deiluskipulagi er gert ráð fyrir leikskóla skáhallt á móti byggingunum. Nærri eru svo Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskóli Garðabæjar. Öflugt íþróttastarf er í bænum og er Stjarnan með félagsstarf fyrir bæði börn og fullorðna þar sem er fjöldi deilda bæði í einstaklings- og hópíþróttum. Óhætt er að segja að nýjir íbúar Hnoðraholtsins muni njóta þess besta sem Garðabær hefur uppá að bjóða í fallegu umhverfi og góðri þjónustu nærri helstu náttúruperlum bæjarins.

Að verkinu standa eftirtaldir aðilar:
Byggingaraðili hússins er Reir verk ehf.
Arkitekt og aðalhönnuður er Nordic Office of Architecture
Verkfræðihönnun, Teknik verkfræðistofa ehf. sá um hönnun á burðarvirki og lögnum.
Cowi sá um hljóðhönnun.
Brunahönnun sá um brunahönnun.
Raflagnahönnun, Raflax sá um raflagna- og lýsingahönnun.
Innanhúshönnun, var á hendi Bjarka Snæs Smárasonar.

Nánari upplýsingar veita:
Ágúst Ingi Davíðsson löggiltur fasteignasali í síma 787-8817 eða agust@remax.is / maggi@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi er almennt 0,8%, en 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða og 1.6% ef um lögaðila er að ræða. Miðast af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
 
 
 

Þorraholt 1

210 Garðabær
74.900.000 kr.1.062 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð70,5 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25332185Fasteignamat65.900.000 kr.Brunabótamat48.400.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑