fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Quesada/Benijofar
1 af 50

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Til sölu einstaklega vel hannað einbýlishús með fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum og er staðsett á frábærum stað í Ciudad Quesada sem er vinsæll bær með allri nauðsynlegri þjónustu eins og matvörubúðum, veitingastöðum, skólum og fleiru. Frá húsinu er allt í göngufæri.  Um er að ræða einbýlishús á stórri eignarlóð sem býður upp rúmgott útisvæði með einkasundlaug og bílastæði inn á lóð. Bílastæðið er með yfirbyggðu þaki og hliðum sem hægt er að opna / loka. Á lóðinni er einnig álskúr sem er notaður sem geymsla meðal annars. Viðhaldslítill garður.   Gengið er inn á jarðhæð en þar má finna rúmgott og opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá eldhúsi út á verönd.  Þrjú svefnherbergi eru á jarðhæðinni ásamt tveimur baðherbergjum, þar af er annað baðherbegið "en-suit". Öll herbergi með stórum skápum. Á efri hæð er svo einkasvíta sem samanstendur af stóru svefnherbergi og sérbaðherbergi ásamt sólsvölum. Eignin er afskaplega vönduð og hafa eigendur (sömu eigendur frá upphafi) viðhaldið og endurnýjað mikið í gegnum tíðina.  Okkar mat - stórglæsilegt og vandað einbýli í frábærum bæ þar sem allt er við höndina og stutt í allar áttir. Nánar um svæðið:Ciudad Quesada – Rojales er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða. Framboðið er einkar heillandi: Gæði á góðu verði Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2456 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170537/unique-detached-house-with-large-plot-in-ciudad-quesada/

Spánarheimili kynnir - Quesada/Benijofar

1053 Spánn - Costa Blanca
95.100.000 kr.483 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð197 m²Herbergi7BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 50 myndir

Upp ↑