fasteignasölur.is
Vorbraut 1 (202)
1 af 64

Um eignina

Miklaborg kynnir: Vorbraut 1 - Einstaklega fallegt og vandað sjö íbúða fjölbýlishús á spennandi stað í Hnoðraholti í Garðabæ. Húsið er með einu stigahúsi með lyftu, sérgeymslur á jarðhæð og stæði í bílskýli fylgir öllum íbúðum, bílskúr fylgir tveimur íbúðum. Allar íbúðir eru 3ja herbergja með mismunandi skipulagi, tvær íbúðir á jarðhæð, þrjár á 2.hæð og tvær íbúðir á 3.hæð. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum innréttingum í viðarliti sem ná til lofts frá Arens en án gólfefna, að undanskildum baðherbergjum og þvottahúsum sem skilast með flísum. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti í öllum íbúðum. Svalalokun á fyrstu og annari hæð á suð-vestur horni hússins. Húsið stendur ofarlega á hæðinni og margar íbúðir með stórbrotnu útsýni.


Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Íbúð 202: Glæsileg 3ja herbergja íbúð á annari hæð, skráð stærð er samtals 123,4 fermetrar.

Forstofa/anddyri: Með stórum fataskápum til lofts.

Hjónaherbergi: Stórt herbergi með fataskápa til lofts á heilum vegg.

Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum til lofts.

Alrými: Stórt og opið rými með eldhúsi og stórri stofu. Eldhúsið skilast með vönduðum tækjum frá AEG, stór eldhúseyja með helluborði. Gólfsíðir gluggar á tvenna vegu hleypa mikilli birtu í rýmið. Útgengt á 8,2fm svalir sem snúa í norð-vestur.

Baðherbergi/þvottahús: Rúmgott baðherbergi með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegar flísar á gólfi og veggjum að hluta til. Vegghengd salernisskál, walk-in sturta, handlaug felld ofan í borðplötu.

Sérgeymsla: 7,5 fermetra sérgeymsla á jarðhæð hússins fylgir.

Bílastæði: Sérmerkt stæði í bílageymslu á baklóð hússins fylgir.


Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla.


Nánari upplýsingar veita:

Gabriel Máni Hallsson lögg. fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson lögg. fasteignasali í síma

Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali í síma

Vorbraut 1 (202)

210 Garðabær
129.900.000 kr.1.053 þ./m²
Jörð/Lóð2 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundJörð/LóðStærð123,4 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2528405Fasteignamat15.600.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 64 myndir

Upp ↑