fasteignasölur.is
Klapparstígur 14
1 af 58

Um eignina

Betri Stofan og Jason Kr. Ólafsson sími 7751515 og jason@betristofan.is kynna: Klapparstígur 14, fallega og vel skipulagða 3ja herbergja, 76,4 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. 

Laus við kaupsamning

Íbúðin skiptist í eldhús og stofu með útsýni, baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél, tvö svefnherbergi og hægt er að ganga úr þeim út á svalir sem snúa til vesturs og eru með seinniparts sólinni. Íbúðin er með gólfhita.

Klapparstígur 14 er lítið fjölbýli byggt árið 2006  með snyrtilegri sameign með lyftu.

Nánari lýsing.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu.
Stofa er opin við eldhús, með fallegu útsýni til sjávar og fjalla og parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, baðkar með sturtuhaus, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi I er með fataskáp og parket á gólfi, útgengi á svalir til vesturs.
Svefnherbergi II er með fataskáp og parket á gólfi, útgengi á svalir til vesturs inní garð/port.
Sérgeymsla er í kjallara sem er að stærðinni 7 fm birtir, eða 6 fm nettó.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Lyftuhús og mánaðargjald fyrir húsfélag er kr. 40.989-

Íbúðin er vel staðsett í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Íbúðin er skemmtileg og tilvalin fjárfesting fyrir áramót.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 7751515 og netfang jason@betristofan.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
73.500.000 kr.962 þ./m²
+59,8% á 6 árum
17. september 2020Þinglýstur kaupsamningur
46.000.000 kr.602 þ./m²
+7,0% á 4 árum
7. mars 2017Þinglýstur kaupsamningur
43.000.000 kr.563 þ./m²
+49,3% á 9 árum
21. september 2007Þinglýstur kaupsamningur
28.800.000 kr.377 þ./m²
+12,9% á 1 ári
5. september 2006Fyrsta sala
25.500.000 kr.334 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Klapparstígur 14

101 Reykjavík
73.500.000 kr.962 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundFjölbýlishúsStærð76,4 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF227881116Fasteignamat72.050.000 kr.Brunabótamat45.400.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 58 myndir

Upp ↑