fasteignasölur.is
Stekkjarhvammur 26
1 af 42

Um eignina

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu mikið endurbætta og vel skipulagða 3ja herbergja sérhæð með sérinngangi og stakstæðum bílskúr við Stekkjarhvamm 26 í Hafnarfirði. Um er að ræða einstaklega vel skipulagða eign sem hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, meðal annars með nýlegum innréttingum, tækjum, innihurðum og gólfefnum, auk glæsilegs útisvæðis með suðvesturverönd. Frábær staðsetning á vinsælum og fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og fallegar gönguleiðir.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og stakstæðan bílskúr. Auk þess fylgir eigninni afgirt suðvesturverönd með heitum potti, köldum potti og saunaklefa sem skapar einstaka aðstöðu til útiveru.

Birt stærð eignarinnar er 115,7 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 23,9 fm.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is

Nánari lýsing
Forstofa
með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með innréttingu frá Fríform, góðu skápaplássi og vönduðum tækjum, harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með útgengi á stóra og skjólgóða suðvesturverönd, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskápum og fataherbergi innaf, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús/geymsla með góðu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Bílskúr með rafmagni, vatni og innréttingu (23,9 fm).

Lóðin er fullfrágengin með góðum veröndum bæði að framan og aftan við húsið sem skapa notalega umgjörð fyrir útiveru og samveru. Afgirt suðvesturveröndin er einstaklega skjólsæl og þar eru heitur pottur, kaldur pottur og saunaklefi.

Eignin hefur fengið mikið og gott viðhald á síðustu árum. Eldhús hefur verið endurnýjað ásamt baðherbergi, gólfefnum og fataskápum í svefnherbergjum. Skipt hefur verið um glugga og útidyrahurð á framhlið hússins og rafmagn uppfært með nýjum tenglum. Útisvæðið hefur einnig verið mikið endurbætt en þar er stór sólpallur með heitum og köldum potti og saunaklefa. Þá hefur þak verið málað, þakrennur endurnýjaðar og húsið sprunguviðgert. Jafnframt hefur þriggja fasa kapall verið lagður í rafmagnstöflu bílskúrs.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
89.900.000 kr.777 þ./m²
+66,5% á 6 árum
15. febrúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
54.000.000 kr.467 þ./m²
+80,6% á 5 árum
16. desember 2015Þinglýstur kaupsamningur
29.900.000 kr.258 þ./m²
+35,9% á 4 árum
20. júlí 2011Fyrsta sala
22.000.000 kr.190 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Stekkjarhvammur 26

220 Hafnarfjörður
89.900.000 kr.777 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1985TegundFjölbýlishúsStærð115,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20793532Fasteignamat85.100.000 kr.Brunabótamat56.330.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑