fasteignasölur.is
Gunnarssund 4
1 af 87

Um eignina

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Gunnarssund 4 – einstaklega fallegt, sjarmerandi og vel skipulagt einbýlishús á þremur hæðum með aukaíbúð jarðhæð á eftirsóttum stað við Austurgötu í hjarta Hafnarfjarðar. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, samgöngur og fjölbreytt mannlíf.

Húsið er byggt árið 2004 og hannað með það að markmiði að falla vel inn í umhverfi gamla bæjarins. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign með góðri lofthæð á efri hæð, fallegu alrými og skemmtilegum útisvæðum. Séríbúðareining á jarðhæð býður upp á möguleika til útleigu eða sem hluta af heimili.

Birt stærð eignarinnar er 225,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands.

Eignin er vel skipulögð og skiptist á þrjár hæðir með góðu flæði milli rýma og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. Á aðalhæð er forstofa, tvö svefnherbergi, vinnuherbergi, baðherbergi og gestasalerni, þvottahús og geymsla / fataherbergi. Á efri hæð er bjart og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, auk útgengis á stórar yfirbyggðar svalir. Á jarðhæð er séríbúð með sérinngangi, forstofu, stofu og eldhúsi í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi, geymslum og útgengi í garð.
 
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT  - Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
 
Nánari lýsing aðalhæð (77,7 fm)
Forstofa,
rúmgóð með fataskáp, flísar á gólfi.
Geymsla/fataherbergi innaf forstofu, flísar á gólfi.
Gestasnyrting með upphengdu salerni og innréttingu, flísalagt í hólf og gólf með gólfhita.
Hjónaherbergi með fataskápum og opnum hillum, parket á gólfi.
Svefnherbergi, rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkari og sér hlaðinni sturtu, upphengt salerni, flísalagt í hólf og gólf með gólfhita.
Hol með góðri vinnuaðstöðu, flísar á gólfi.
Þvottahús með innréttingu og góðu skápaplássi, flísar á gólfi og veggjum að hluta.

Nánari lýsing efri hæð (64,7 fm)
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með stórum gluggum og mikilli lofthæð, parket á gólfi og útgengi á svalir til suðvesturs.
Eldhús með ljósri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og stór Smeg eldavél, mikið skápapláss og góð vinnuaðstöðu, parket á gólfi.

Nánari lýsing jarðhæð (83,1 fm) - sérinngangur neðan frá lóð ásamt innangengi frá efri hæðum.
Forstofa/hol með fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu rými, bjart og vel skipulagt, flísar á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla, rúmgóð með glugga, möguleiki á að útbúa svefnherbergi.
Geymsla II lítil við stigann.

Yfirbyggt forrými með útgengi í skjólgóðan garð með hellulagðri verönd. Útigeymsla innaf forrými, ekki skráð í fermetratölu.
 
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 

Gunnarssund 4

220 Hafnarfjörður
149.900.000 kr.665 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 3 bað
Byggingarár2004TegundEinbýlishúsStærð225,5 m²Herbergi6InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF22672389Fasteignamat149.700.000 kr.Brunabótamat107.250.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 87 myndir

Upp ↑