fasteignasölur.is
Naustavör 16
1 af 49

Um eignina

Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is  fasteignasala kynnir: 4ra til 5 herbergja íbúð í lyftuhúsi við Naustavör 16, sem er við sjávarsíðuna á Kársnesinu í Kópavogi. Íbúðin sjálf er 141,6 fermetrar að stærð auk sérgeymslu í kjallara, 8,4 fermetra. Samtals er því birt flatarmál eignarinnar 150 fermetrar auk sérmerkts bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins, merkt B-10.  Tvennar svalir eru á íbúðinni. Tvö baðherbergi með sturtu. Frábær staðsetning. 

Eignin skiptist í forstofu, stofur, eldhús, sjónvarpshol, svefnherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf, tvö önnur svefnherbergi, auka baðherbergi með sturtu, þvottaherbergi. Sérgeymsla og stæði í bílageymslu. Gólfhiti er í íbúðinni

Komið inní anddyri með fataskápum.  
Rúmgott hol sem skiptist í stofur, eldhús og sjónvarpsherbegi.
Stofur: eru einstaklega rúmgóðar með gott flæði og skipulagið er gott.
Sjónvarsrými / herbergi með fallegu útsýni.
Svalir á smábátahöfnina og til austurs með morgunsólinni út frá stofu.
Eldhús: Kvartssteinn frá S.Helgasyni. Eldhúsinnrétting er frá Brúnás. Gott skápapláss, stór eyja. 
Baðherbergi: Gengið er í það frá frá holi/stofu. Á baðherberginu er sturta, gólfið flísalagt og veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting er frá Brúnás. 
Hjónasvíta: Með fataherbergi og baðherbergi.
Skrifstofa/ svefnherbergi snúa til vesturs og úr öðru þeirra er útgengt út á svalir sem eru yfirbyggðar.
Þvottahús: Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás með ræstivask og blöndunartæki í borði.
Sérgeymsla: Er að stærðinni 8,4 fermetrar. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Brúnási, eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Bræðrunum Ormsson og blöndunartæki eru af vandaðri gerð frá Tengi.
Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. 

Lóð: frágengin samkvæmt teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð.

Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni við sjávarsíðuna. Stutt yfir í Sky Logoon og innan örfárra ára kemur brú yfir Fossvoginn sem styttir gönguleiðina til Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7751515, tölvupóstur jason@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
160.000.000 kr.1067 þ./m²
+103,8% á 9 árum
9. mars 2018Fyrsta sala
78.500.000 kr.523 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Naustavör 16

200 Kópavogur
160.000.000 kr.1.067 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð150 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF23608535Fasteignamat135.950.000 kr.Brunabótamat102.020.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 49 myndir

Upp ↑