fasteignasölur.is
Akurbraut 10
1 af 36

Um eignina

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Akurbraut 10. 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða fimm herbergja, 135,4 fm. parhús á góðum stað í Njarðvík.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi og sólpall.
 
Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Alrýmið er rúmgott með parketi á gólfi.
Eldhús með flísar á gólfi. Viðar innrétting með helluborði og viftu. Þar er útgengi út á verönd að framan.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Sólstofa með flísum á gólfi, þar er útgengi út á pall.
Herbergin fjögur talsins með parketi á gólfum, stór fataskápar er í hjónaherberginu.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og hluta af veggjum, sturtu og góða innréttingu.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góða innréttingu með skolvask.

Studio íbúð er í skúrnum.
Sérinngangur, komið er inn um anddyri með flísum á gólfi
Alrýmið er parketlagt, þar er eldhúskrókur.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, salerni, sturta, innrétting og tengi fyrir þvottavél.

Bílaplan er hellulagt.
Staðsetningin er frábær, stutt í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun Suðurnesja
89.500.000 kr.661 þ./m²
+29,7% á 2 árum
2. apríl 2024Þinglýstur kaupsamningur
69.000.000 kr.510 þ./m²
+7,0% á 1 ári
29. desember 2022Þinglýstur kaupsamningur
64.500.000 kr.476 þ./m²
+43,3% á 3 árum
18. september 2019Fyrsta sala
45.000.000 kr.332 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Akurbraut 10

260 Njarðvík
89.500.000 kr.661 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2006TegundRað-/parhúsStærð135,4 m²Herbergi5BílskúrFasteignanúmerF22801494Fasteignamat80.850.000 kr.Brunabótamat68.950.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun Suðurnesja
HeimilisfangHafnargata 50, 230 ReykjanesbærSími420-4050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑