fasteignasölur.is
Vesturbakki 13 Bil 102
1 af 6

Um eignina

Miklaborg og Byggingafélagið Hvati kynna: Geymsluhúsnæði að Vesturbakka 13 í Þorlákshöfn. Húsið skiptist í 12 einingar, 72 fm að stærð. Allar einingar eru með ræstivask. Húsið er á einni hæð með malbikaðri lóð, gert er ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu.

 

Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Um er að ræða atvinnu/geymslu -húsnæði við Vesturbakka í Þorlákshöfn. Húsið skiptist í 12 einingar, hvert bil 72 fm að birtri stærð. Húsið er á einni hæð með malbikaðri lóð, gert er ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu.

Almenn lýsing samkvæmt skilalýsingu:

Húsið er byggt ofan á steypta sökkla. Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum, rör í rör. Útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit. Iðnaðarhurðir eru 4,35 m á hæð frá Héðni hf , litur RAL 7016, með rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016. Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir.

 

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

 

Allar nánari upplýsingar gefur:

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Vesturbakki 13 Bil 102

815 Þorlákshöfn
24.900.000 kr.346 þ./m²
Annað
Byggingarár2026TegundAnnaðStærð72 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2534928Fasteignamat18.700.000 kr.Brunabótamat21.250.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 6 myndir

Upp ↑