fasteignasölur.is
Mór 0
1 af 13

Um eignina

Við lokum aldrei!!!

Óskað er eftir tilboði í eignina!

Lýsing eignar: Um er að ræða Mór, sjarmerandi u.þ.b. 80 fermetra einbýlishús á fallegum stað rétt norðan við Dalvík. Neðri hæðin er steinsteypt en efri hæðin er bárujárnsklætt timburhús. Eigninni fylgir áföst viðbygging sem skráð er sem hlaða. Útsýnið frá húsinu er stórfenglegt og eignin býður upp á mikla möguleika, m.a. á stækkun, enda stendur húsið á 2.480 fermetra eignarlóð með mjög góðu aðgengi.
Athugið að eigninni fylgir annað fastnúmer sem skráð er sem fjárhús. Þar standa nú einungis sökklar sem greidd eru fasteignagjöld af.
Skipulag og rými:
Forstofa: Er án gólfefna.
Eldhús: Gengið er inn í eldhús á vinstri hönd úr forstofu. Þar er eldri innrétting og borðplata með álímdri, slitsterkri PVC filmu. Ljóst plastparket er á gólfi.
Baðherbergi: Ljósar flísar og gólfhiti. Þar er sturta, salerni og handlaug ásamt tengi fyrir þvottavél.
Herbergi á jarðhæð: Eitt svefnherbergi er á neðri hæð með ljósu plastparketi.
Efri hæð: Skiptist í tvær stofur og tvö svefnherbergi. Ljóst plastparket er á öllum gólfum.
Ástand, viðhald og lagnir:
Gluggar og gler: Í þokkalegu standi. Gluggar í viðbyggingu voru endurnýjaðir árið 2019, ásamt því að gler og þéttilistar voru endurnýjaðir í herbergi á efri hæð.
Þak og ofnalagnir: Skipt var um bárujárn á þaki íbúðarhússins 2009. Gömul ummerki um leka eru sjáanleg í lofti, en ekki hefur orðið vart við neinn leka síðan skipt var um járnið. Ath: Þak á viðbyggingu þarfnast endurnýjunar. Lagnir og ofnar í húsinu voru endurnýjuð rétt áður.
Frárennsli: Skipt var út rotþró í nóvember 2023.
Ljósleiðari: Ljósleiðari var lagður inn í húsið árið 2023.
Lóðar frágangur: Bílaplanið var jarðvegsskipt árið 2020.
Innréttingar: Eru komnar til ára sinna.
Viðbygging og Lóð: Viðbyggingin (hlaðan) býður upp á margvíslega möguleika til notkunar eða breytinga fyrir nýja eigendur. Húsinu fylgir mikið og stórt eignarland þar sem finna má gamlan reykkofa og tvo litla timburpalla. Á hlið hússins er einnig gamall vatnsbrunnur sem er afar sjarmerandi og setur skemmtilegan svip á umhverfið.Mór, einbýlishús, staðsett á eignarlóð á fallegum stað rétt norðan Dalvíkur með áfastri viðbyggingu sem er skráð sem hlaða.  Útsýni er stórfenglegt og býður eignin býður upp á mikla möguleika og mögulega auðvelt að stækka húsið þar sem það stendur á 2,480.- eignarlóð og aðgengi að húsi er gott.  

 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  arnar@fastak.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Mór 0

620 Dalvík
Tilboð
Einbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1936TegundEinbýlishúsStærð0 m²Herbergi3FasteignanúmerF21553941Fasteignamat23.100.000 kr.Brunabótamat11.300.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Akureyrar
HeimilisfangSkipagata 1, 600Sími460-5151

Allar 13 myndir

Upp ↑