fasteignasölur.is
Klapparás 11
1 af 65

Um eignina

Einstaklega vel staðsett einbýlishús með bílskúr innst í botnlangagötu á stórri eignarlóð á eftirsóttum og rólegum stað neðst í hverfinu í einstöku umhverfi við Elliðaárdalinn í Árbæ. Að utan virðist húsið í góðu ástandi og hefur verið vel viðhaldið. Byggingarár hússins er 1962 og var það stækkað 1980 og er húsið klætt að utan. Þak var endurnýjað árið 2015. 

Eignin er skráð alls 252,3fm. og þar af er bílskúr 25 fm. og kjallari 50,5fm. Lóðin er skráð 1.610 fm. 

Nánar um eignina:

Anddyri rúmgott með flísum á gólfi. 
Gangur og hol með parketi á gólfi. Þakgluggar eru í rýminu sem gefa fallega dagsbirtu.
Stofa rúmgóð og björt með fallegu útsýni og parketi á gólfi. Útgengt er út á stóran pall úr stofunni. 
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, rúmgóður eldhúskrókur og korkflísar á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús.
Þvottahús með glugga, vask, innrétting og flotað gólf. 
Hjónaherbergi mjög rúmgott með mjög góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi II rúmgott með dúk á gólfi. 
Svefnherbergi III með skáp og dúk á gólfi. 
Borðstofa með stórum gluggum og svalahurð, parket á gólfi. Útgengt er út í bakgarð úr borðstofunni.
Stofa/fjölskyldurými með parketi á gólfi. Útgengt er út á pall úr rýminu. 
Kjallararými með innangent innan hússins og einnig sérinngangi á hlið hússins, salerni, opið rými með parketi á gólfi. 
Bílskúr með bílskúrshurð með rafmagnsopnara, upphitaður, rafmagn og heitt og kalt vatn. Hurð liggur út í garð á bakhlið bílskúrsins. 

Lóðin er í góðri rækt og slátturróbot sér um garðslátt sem getur fylgt húsinu. Hugað hefur verið að því að gera garðinn einfaldan í umhirðu.
Hellulagt bílaplan fyrir framan bílskúrinn með snjóbræðslu. 

Þak var endurnýjað árið 2015.
Innkeyrsla var endurnýjuð með snjóbræðslu árið 2000.

EIGNIN ER MJÖG VEL STAÐSETT ÞAR SEM STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÞJÓNUSTU, ÍÞRÓTTASVÆÐI, SUNDLAUG OG FALLEGAR GÖNGULEIÐIR Í ELLIÐARÁRDALNUM.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Klapparás 11

110 Reykjavík
159.900.000 kr.634 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1962TegundEinbýlishúsStærð252,3 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF20460831Fasteignamat161.750.000 kr.Brunabótamat122.780.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 65 myndir

Upp ↑