fasteignasölur.is
Tjarnabraut 4
1 af 28

Um eignina


Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð(merkt 201) við Tjarnabraut 4 í Reykjanesbæ.

Vel skipulögð íbúð með sérsmíðuðum innréttingum. Alrými íbúðarinnar er opið og bjart. Gólfhiti er í eigninni. Henni fylgir merkt stæði, búið er að leggja fyrir rafhleðslu.

Nánari lýsing:
Anddyri með parkeyti á gólfi og fataskáp.
Stofa og eldhús með parketi á gólfi, stílhrein innrétting í eldhúsi með innbyggðum ísskáp/uppþvottavél og góðri eyju.  Frá stofu er útgengt á lokaðar svalir.
Svefnherbergin þrjú eru með parketi á gólfum og fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Falleg innrétting, upphengt salerni og sturta. Þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Eigninni fylgir geymsla sem staðsett er á fyrstu hæð. Hjólaskýli er á lóð.

Húsið er einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar úr álklæddu timbri. Innréttingar eru frá Nobilia,  fataskápar í herbergjum frá GKS. Hnotu innréttingar í eldhúsi og baðherbergi, innihurðar og fataskápar eru hvítir. Vel skipulögð eign. Stétt við innganga er hellulögð og gönguleiðir með snjóbræðslukerfi.  
Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla ásamt verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.

 
Allar nánari upplýsingar veitir
Haraldur F. Guðmundsson Löggiltur fasteignasali í s: 6619391
eða halli@studlaberg.is


 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Stuðlaberg
63.900.000 kr.759 þ./m²
+3,1% á 1 ári
7. apríl 2025Þinglýstur kaupsamningur
62.000.000 kr.736 þ./m²
+15,0% á 1 ári
3. nóvember 2023Fyrsta sala
53.900.000 kr.640 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tjarnabraut 4

260 Njarðvík
63.900.000 kr.759 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð84,2 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25219381Fasteignamat58.600.000 kr.Brunabótamat56.100.000 kr.
Skráð hjá
Stuðlaberg
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑