fasteignasölur.is
Furugrund 37
1 af 24

Um eignina

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf  sími 570-4824.

Getur verið laust fljótlega.  
Vel skipulagt 176,5 fm einbýlishús á einni hæð, þar af er bílskúr skráður 40,5 fm. Húsið er skráð steypt, klætt að utan. Bílskúr með hita og rafmagni, bílagryfja og geymsla/herbergi í enda bílskúrs, klósett og vaskur í bílskúr. Innkeyrsla er malbikuð. Tveir sólpallar, annar þeirra með heitum potti. 
Forstofan er flísalögð, ( hiti í gólfi ) stór fataskápur. Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, innrétting og mikið skápapláss á  baði, hiti í gólfi baðherbergis.
Innan hússins eru 4 svefnherbergi, stofa og borðstofa. Sólpallur með heitum potti í vesturenda húss ( hitastýring í bílskúr ), útgengt frá gafli húss, steinsteypt verönd á milli sólpalls og bílskúrs. Úr stofu er gengið út á steyptan suðursólpall. Eldhús með hvít/beyki innréttingu í hluta alrýmis sem telur stofu, borðstofu og eldhús. Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús og þaðan útgengt. 

Eftirfarandi endurbætur hafa farið fram á húsinu að sögn seljanda:
1992/1993 skolplögn viðgerð undir húsi ( skriðkjallara frá bílgryfju ) 
1998 járn á þaki endurnýjað
2006 Baðherbergi endurnýjað
Gluggar, gler og útihurðir ( ekki nákvæmt ártal liggur fyrir líklega í kringum 2004)
2011 ofnalagnir
2012 sólpallur og heitur pottur
2016 Loftaklæðning í húsi
2022 þakkantur yfirfarinn og þakrennur endurnýjaðar
2021/2022 neysluvatnslagnir. 
 

Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is

Furugrund 37

300 Akranes
94.900.000 kr.538 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1973TegundEinbýlishúsStærð176,5 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF21029847Fasteignamat91.950.000 kr.Brunabótamat85.600.000 kr.
Skráð hjá
Valfell Fasteignasala
HeimilisfangKirkjubraut 2, 300 AkranesSími570-4824

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑