fasteignasölur.is
Miðfellsvegur 2
1 af 43

Um eignina

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu RISABJÖRG í ÚTHLÍÐ - mikið endurbætt / nýlegt heilsárshús með heitum potti við Miðfellsveg 2 í landi Úthlíðar í Biskupstungum, einu vinsælasta sumarhúsasvæði landsins þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, golfvelli og útivistarsvæði. Lokað svæði með fjarstýrðu hliði.

Húsið er timburhús á steyptum súlum með standandi viðarklæðningu, stór afgirt timburverönd umhverfis húsið, heitur pottur og geymsluskúr en eins er byrjað að grafa fyrir stækkun á palli og geymsluskúr. Húsið var upphaflega byggt árið 1988 og var þá um 47 fm að stærð en var svo stækkað um rúmlega 60 fm á síðust árum og eldri hlutinn endurnýjaður, klæddur að utan og byggð ný timburverönd.

Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Birt stærð samkæmt HMS frá árinu 2019 er 107,7 fm en í húsinu er rúmgott alrými, þrjú svefnherbergi, svefnloft og tvö baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa
, flísalögð með fatahengi.
Stofa með fallegum arni, parket á gólfi og útgengt á timburverönd.
Eldhús og borðstofa með hvítri innréttingu, uppþvottavél og parket á gólfi og útgengt timburverönd.
Hjónaherbergi með stórum fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi innaf hjónaherbergi, flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Tengi fyrir þvottavél.
Tvö önnur svefnherbergi án fataskápa, parekt á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtuklefa.
Svefnloft með glugga.

Lóðin er 5401 fm leigulóð en gerður verður nýr samningur við kaupendur.  Ársleiga í dag 120.000 en einnig er greitt í sumarhúsafélagið um 16.000 kr á ári, aðgangur að rafmagnshliði innifalinn. Fasteigngjöld kr 31.225 pr mánuð en þá er kaldavatnið innifalið og losun á rotþró á 3ja ára fresti innifalin. Eigendur greiða ca 14.600 á mánuði fyrir heita vatnið til Veitna og ca 7.400 kr á mánuði fyrir rafmagn til Rarik.

Vel staðsett hús þaðan sem stutt er á Flúðir, Laugarvatn, Laugarás, Gullfoss og Geysi.
 

Miðfellsvegur 2

806 Selfoss (dreifbýli)
59.900.000 kr.556 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1988TegundSumarhúsStærð107,7 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF220572019Fasteignamat53.200.000 kr.Brunabótamat65.050.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 43 myndir

Upp ↑