fasteignasölur.is
Kirkjuvellir 8A
1 af 40

Um eignina

Hraunhamar kynnir. Björt, falleg og einstaklega vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð á Kirkjuvöllum 8b í Hafnarfirði.
Falleg íbúð, björt með gluggum í þrjár áttir. Lyfta í húsinu.

 
## Þrjú svefnherbergi
### Gott aðgengi. 


Eignin er samtals skráð  109,1 fm, íbúðin 100,5 fm og geymsla 8,6 fm.
 
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í forstofu um sér inngang.Forstofan er nokkuð rúmgóð með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi: Hjónaherbergi með skápum á heilum vegg og tvö barnaherbergi, hvort um sig með góðum skápum. 
Eldhús og stofa: Eldhús með fallegri innréttingu, björt stofa og þaðan utangengt út á svalir. 
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með baðkari / sturtu og upphengdu salerni auk vaskinnréttingar.
Þvottahús: Sér þvottahús er í íbúðinni, nýjar innréttingar með vélar í réttri hæð og góðum skápum auk ræstivasks.

Gólfefni eignarinnar: Harðparket er á stærstum hluta íbúðarinnar, flísar á baðherbergi, þvottahúsi og forstofu.

Sameign: Mjög snyrtileg sameign, lyftuhús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Geymsla: 8,6 fm geymsla í kjallara sameignar fylgir eigninni.

Stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla, sundlaugar og íþróttaaðstöðu

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
77.900.000 kr.714 þ./m²
+11,3% á 3 árum
25. október 2023Þinglýstur kaupsamningur
70.000.000 kr.642 þ./m²
+50,9% á 5 árum
19. október 2018Fyrsta sala
46.400.000 kr.425 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kirkjuvellir 8A

221 Hafnarfjörður
77.900.000 kr.714 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð109,1 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF236345719Fasteignamat76.600.000 kr.Brunabótamat65.050.000 kr.
Skráð hjá
Hraunhamar
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑