fasteignasölur.is
Strandgata 26
1 af 15

Um eignina

Hannes Steindórsson og Gunnar Valsson kynna með stolti: Einstakar lúxus íbúðir í hjarta Hafnarfjarðar þar sem öll nauðsynleg þjónusta, bókasafn, verslanir, kaffi og veitingahús eru í göngufæri. Efri íbúðir njóta sjávarútsýnis til suðurs og vesturs. Bogadregnir gluggar á stölluðum þaksvölum. Hljóðdúkar í loftum með innfelldri lýsingu.
Hér má skoða allt verkefnið

Allar íbúðir eru með stórum gólfsíðum gluggum, en lögð er rík áhersla á að veita góða dagsbirtu og að hámarka útsýni. Gólfhiti í öllum íbúðum til að hámarka útsýni úr gólfsíðum gluggum og halda stílhreinu og fáguðu útliti. Húsið er klætt að utan með áltré gluggum.

Sérsmíðaðar innréttingar, úr spónlagðri amerískri hnotu, frá VOKE III.
Dekton Steinn á borðum, liturinn er innblásin af sandsteini og sameinar hlýja beige- og gráa tóna sem skapar rólegt og tímalaust yfirbragð. Vönduð tæki frá Miele og Elica. Vandaðar 60X120 flísar á baðherbergjum.

Íbúð 305 er 62,8 fm, 2ja herbergja íbúð á 3.hæð ásamt 24,1 fm sérafnotarétti.  Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, hjónaherbergi, eldhús, stofu og sérgeymslu í sameign. 

Allar nánari upplýsingar veita: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is eða Gunnar Valsson s.699-3702 gunnar@fastlind.is

Strandgata 26

220 Hafnarfjörður
74.900.000 kr.1.193 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1995TegundFjölbýlishúsStærð62,8 m²Herbergi1InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF253818412Fasteignamat52.650.000 kr.Brunabótamat40.200.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑