fasteignasölur.is
Strandgata 26
1 af 7

Um eignina

Gunnar Valsson og Hannes Steindórsson kynna með stolti glæsilegar nýjar lúxusíbúðir á besta stað í miðbæ Hafnarfjarðar. Frágangur íbúða er einstaklega vandaður og hugsað út í öll smáatriði. Frábært útsýni er úr flestum íbúðum og með öllum íbúðum fylgja svalir og/eða rúmgóðar þaksvalir.

- Einstakt útsýni
- Frábær staðsetning.
- Þaksvalir
- Stórir gólfsíðir gluggar
- Loftskiptakerfi.
- Hljóðdúkur í lofti.
- Innfelld lýsing.
- Gólfhiti

Íbúð 505 er þriggja herbergja íbúð á 5. hæð, skráð 95,4fm þar af er 9,3 fm geymsla. 29,3 fm þaksvalir fylgja eigninni.

Sjá heimasíðu verkefnisins hér. 

Lýsing eignar skv. teikningu:
Forstofa með fataskáp.
Eldhús og borðstofa í björtu opnu rými. Útgengt þaðan út á 29 fm þaksvalir. 
Eldhús með smekklegri innréttingu frá Voke III, vönduð eldunartæki og steinn á borðum.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum,
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. 
Geymsla í sameign.
Sérbílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. 

Íbúðirnar eru sérlega vel innréttaðar með innréttingum frá Voke III og vönduðum eldunartækjum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. 
Vínyl parket frá Parka á alrými, herbergjum og flísar í votrýmum. Gólfhiti.
Hægt er að kaupa bílastæði á 10 milljónir króna.

Húsið er á besta stað í miðbæ Hafnarfjarðar, í nærumhverfinu er öll helsta þjónusta.
Í nýja Firði verður m.a. nýtt glæsilegt bókasafn Hafnfirðinga, spennandi verslanir, kaffihús og veitingastaðir.

Byggingaraðili er GG verk.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3,800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 

Strandgata 26

220 Hafnarfjörður
133.900.000 kr.1.404 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1995TegundFjölbýlishúsStærð95,4 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF25382025Fasteignamat79.900.000 kr.Brunabótamat66.520.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 7 myndir

Upp ↑