fasteignasölur.is
Sóltún 30
1 af 16

Um eignina

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 5. hæð að Sóltúni 30, 104 Reykjavík í lyftuhúsi. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.

Nánari lýsing:
Íbúð 504.
Anddyri með fatahengi.
Komið inn í hol, sem tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Eldhús: með L-laga innréttingu og nettum borðkrók. Í innréttingu er bakarofn, helluborð, vifta og tvöfaldur stálvaskur. Tengt er fyrir uppþvottavél og innbyggð uppþvottavél fylgir.
Stofa: snýr að bakgarði. Svalir snúa í suður.
Baðherbergi: klósett, handlaug & baðkar m/sturtu. Flísar á veggjum að hluta.
Herbergin eru 2 og eru bæði með fataskáp.
Gólfdúkur er á allri íbúðinni.

Sameiginlegt þvottahús fyrir íbúðir hæðarinnar eru á hæðinni. Tvö sett af þvottavél og þurrkara eru þar.
Hjólageymsla á jarðhæð.

Lóðin er leigulóð. Lóðarleigusamningur er frá 1996 til 75 ára.
Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð á hæð merkt 01-05-04, birt stærð er 84,9 fm byggt 1998. Íbúðin sjálf er 3ja herbergja skráð 77,4 fm. Sér geymsla í kjallara er skráð 7,5 fm. Geymslan er merkt 01.00.42 í skráningu.

Stutt í þjónustu og skóla.
Sér merkt bílastæði fyrir íbúðina ásamt gestastæðum.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is 
Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Sóltún 30

105 Reykjavík
72.500.000 kr.854 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1998TegundFjölbýlishúsStærð84,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF22344532Fasteignamat72.300.000 kr.Brunabótamat40.600.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Bær
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑