fasteignasölur.is
Andrésbrunnur 13
1 af 36

Um eignina

Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð (efstu) auk bílastæðis í innangengri 3ja bíla bílskýli í góðri lyftublokk með fallegu útsýni við Andrésbrunn í Grafarholti. Eldhús var endurnýjað árið 2022. Öll svefnherbergi íbúðarinnar eru rúmgóð. Rúmgott þvottahús er innan íbúðar. Gegnheilt eikarparket sem var pússað upp fyrir 2 árum og skipt um alla parketlista. Tvennar geymslur fylgja eigninni. Skipt var um þakdúk á öllu húsinu árið 2025.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 122,2 fm. og þar af eru tvennar geymslur 12,4 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. 

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, gangur,  tvennar geymslur og bílastæði í bílageymslu. 


Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með góðum gluggum og parket á gólfi. Útgengt er út á skjólgóðar og rúmgóðar suð/vestur svalir með fallegu útsýni.
Eldhús var endurnýjað árið 2022 og er opið við stofu, gott skápapláss, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvennum ísskápum í innréttingunni, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Tvö svefnherbergi mjög rúmgóð bæði með skápum og parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, góð innrétting, flísalagðir veggir og gólf. 
Þvottahús er innan íbúðar og mjög rúmgott með innréttingu, skolvaskur, hillur og flísar á gólfi.
Geymslur íbúðar eru tvær,  9,1 fm. og 3,3 fm. annars vegar á 1.hæð og og hins vegar á jarðhæð
Stæði í bílageymslu fylgir eigninni, stæðið er í þriggja bíla innangengri bílageymslu. Bílageymslan er með góðu aðgengi (lyfta) og upphituð. 

Stigagangur er snyrtilegur og vel um genginn.
Lóðin er sameiginleg. 
Hitalögn er í götum og gangstéttum að húsinu og við húsið. 

Um að ræða vel um gengna og fallega eign sem er  í lyftuhúsi með stæði í lokaðri innangengri bílageymslu.
Góð staðsetning þar sem er stutt í leikskóla auk grunnskóla eru í næsta nágrenni. Stutt í íþróttamiðstöð og matvöruverslanir.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is 
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
92.500.000 kr.757 þ./m²
+17,1% á 2 árum
11. júlí 2024Þinglýstur kaupsamningur
79.000.000 kr.646 þ./m²
+64,6% á 6 árum
10. júlí 2018Fyrsta sala
48.000.000 kr.393 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Andrésbrunnur 13

113 Reykjavík
92.500.000 kr.757 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundFjölbýlishúsStærð122,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF22620451Fasteignamat84.250.000 kr.Brunabótamat67.610.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑