fasteignasölur.is
Sóleyjargata 21
1 af 56

Um eignina

Einstaklega sjarmerandi og tignarlegt einbýlishús á eftirsóttum stað á eignarlóð við Sóleyjargötu í Þingholtunum.  Eignin er skráð 235,1 fm., steinsteypt einbýlishús byggt árið 1933 af góðum efnum. Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara og er í dag auka íbúð í kjallara með sér inngangi. Falleg eign með stórum suður garði nálægt miðbær Reykjavíkur, í göngufæri er leikskóli, skóli og ýmis þjónustu. 

Nánar um eignina: 

Aðalinngangur inn í húsið er á miðhæð sem er skráð 94,1fm. og skiptist þannig: 
Anddyri með flísum á gólfi.
Gestasalerni með glugga og dúkur á gólfi. 
Hol rúmgott og tengist öllum vistaverum hæðarinnar með fallegum parketlögðum stiga sem liggur upp á efri hæð hússins. 
Samliggjandi stórar stofur með parketi á gólfi. Úr annarri stofunni er útgengt út á svalir og þaðan út í garð. 
Herbergi mjög rúmgott með dúk á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, upprunaleg eldavél, gufugleypir og flísar á gólfi. Gengið er úr eldhúsinu niður í kjallara hússins. 

Gengið er upp fallegan parketlagðan stiga á efri hæð sem er skráð 88,5 fm. og skiptist þannig:
Komið er upp fallegan stiga upp á stigapall og á hæðinni eru fjögur svefnherbergi.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með teppi á gólfi. Útgengt er út á suðursvalir úr herberginu. 
Inn af hjónaherbergi er innangengt inn á baðherbergi, gott skápapláss er á milli hjónherbergis og baðherbergis. Einnig er innangengt úr herberginu inn í annað svefnherbergi. 
Svefnherbergi með teppi á gólfi og er einnig innangengt úr herberginu inn í hjónaherbergið. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, gluggi, vaskur og flísar á gólfi.
Gestasalerni er við hliðina á baðherberginu.
Eldhúsaðstaða er á hæðinni og er í dag sturtuklefi inn í rýminu.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með lökkuðu gólfi. 
Geymsluloft er yfir hæðinni.

Í kjalla er innangengt úr eldhúsi sem og sér inngangur að utan, kjallari er skráður 52,5 fm. og skiptist þannig:
3ja herbergja íbúð er í kjallara með stórri rúmgóðri stofu, rúmgott svefnherbergi, eldhús og baðherbergi með sturtuklefa.
Þvottahús, þurrkherbergi og mjög gott geymslurými er í kjallaranum. 

Lóðin í kringum húsið er skráð 475,1fm. með stór suður garði í góðri rækt.  

Einstaklega vandað og fallegt einbýlishús í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi á þessum einstaka stað í hjarta Reykjavíkur. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is





 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Sóleyjargata 21

101 Reykjavík
Tilboð
Einbýlishús5 svefn · 4 bað
Byggingarár1933TegundEinbýlishúsStærð235,1 m²Herbergi8InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF20073881Fasteignamat229.000.000 kr.Brunabótamat144.200.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 56 myndir

Upp ↑