fasteignasölur.is
Karlsbraut 12
1 af 29

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Karlsbraut 12 - 5-6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og stakstæður bílskúr á Dalvík - stærð 168,5 m²

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti
Efri hæð:
Forstofa/viðbygging, gangur, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og tvær samliggjandi stofur. 
Neðri hæð: Bakinngangur, gangur, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.

Forstofa/viðbygging var byggð við húsið fyrir um 5 árum og var þá byggt yfir steyptar tröppur á norðurhlið hússins. Þar er lakkað gólf og gluggar til þriggja átta. Aðstaða er fyrir stóla svo hægt er að sitja og njóta kvöldsólarinnar. Úr forstofu er gengið inn á gang með parketi á gólfi. Annar inngangur er inn á neðri hæðina.
Eldhús, upprunaleg hvít máluð innrétting og parket á gólfum. Ágætur borðkrókur. Úr eldhúsi liggur steyptur stigi niður á neðri hæðina. 
Tvær samliggjandi stofur eru á efri hæðinni með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. 
Svefnherbergin eru fjögur, eitt á efri hæðinni með dökku parketi á gólfi. Á neðri hæðinni eru þrjú herbergi, öll með dúk á gólfi. 
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Á efri hæðinni er upprunalegt baðherbergi með dúk á gólfi, hvítri innréttingu og skápum, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Á neðri hæðinni eru flísar á gólfi og þiljur á veggjum, hvít innrétting, wc og sturtuklefi. 
Þvottahús er á neðri hæðinni og þar er lakkað gólf, hvít innrétting, bekkur með vask og opnanlegur gluggi. 

Bílskúr er stakstæður og skráður 28,4 m² að stærð. Gólf er steypt og án gólfefna. Sér gönguhurð á langhliðinni og nýleg innkeyrsluhurð á framhliðinni. Búið er að endurnýja glugga. Bílskúrinn er kynntur með affalli af íbúðarhúsi. Steypt stétt er fyrir framan bílskúrinn. 

Annað
- Falleg og gróin lóð.
- Ekki er full lofthæð á neðri hæðinni.
- Ofnar eru á innveggjum. 
- Þak er gamalt og þarfnast skoðunar. 
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Karlsbraut 12

620 Dalvík
48.500.000 kr.288 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1943TegundEinbýlishúsStærð168,5 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF21549811Fasteignamat46.500.000 kr.Brunabótamat67.890.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑