fasteignasölur.is
Austurbrú 18
1 af 20

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu - fjögurra herbergja "penthouse" íbúð á tveimur hæðum merkt 0410 í nýbyggingu með þremur svölum og stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 18, Akureyri.

Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.


Skoðaðu heimasíðu verkefnisins hér

Íbúðin er samtals 187,7fm., þar af er geymsla 13,6fm.

Neðri hæð
Gert er ráð fyrir forstofu, eldhúsi, stofu/borðstofu, svefnherbergi, og baðherbergi.  Útgengt er úr stofu, baðherbergi og svefnherbergi út á um 27,5fm. svalir.  
Útgengt er úr forstofunni á svalir til vesturs.

Efri hæð  
Mikil lofthæð einkennir efri hæðina, þar er gert ráð fyrir gangi, baðherbergi og tveimur rúmgóðum svefnherbergjum.

13,6fm. sér geymsla í sameign.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.

Íbúðin afhendist fullbúin að utan en ófullgerð, nánast tilbúin til tréverks að innan. 
Gert er ráð fyrir að kaupandi vilji hanna lokafrágang á íbúðinni þar sem miklir og skemmtilegir möguleikar eru við lokafrágang á þessari einstöku eign.
Fallegur stigi milli hæða innan íbúðarinnar fylgir eigninni.

Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri. Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. 
Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og þaðan inn á Skáld Hótel sem hefur verið opnað.
Inngangur um bílageymslu í hótelið er einungis fyrir íbúðareigendur og hótelgesti.


Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.

Tölvugerðar myndir eru úr svipaðri íbúð við Austurbrú 14 (íbúð 404)

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala -  Sími: 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Austurbrú 18

600 Akureyri
157.300.000 kr.838 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð187,7 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25313772Fasteignamat84.000.000 kr.Brunabótamat8.250.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑