1 af 20
Um eignina
Falleg miðhæð ásamt rúmgóðum bílskúr í 3-býli að Höfðabraut 3 á Akranesi. Eignin er alls 135,2 fm. og skiptist í íbúð á hæð 103,5 fm. og 31,7 fm. bílskúr (endaskúr í 3ja skúra lengju). Hæðin skiptist í stórt miðjuhol, tvær stofur, eldhús, baðherbergi, sérþvottahús, geymslu og tvö svefnherbergi (3 skv. teikningu). Inndregnar suður-svalir.
Nánari lýsing: Komið er á rúmgott parketlagt hol með fataskráp. Af því er gengið í allar vistarverur íbúðarinnar. Strax á vinstri hönd er geymsla með glugga. Stofurnar eru tvær parketlagðar og bjartar, með tveimur gluggum til suðurs og einum til vesturs (innri hluti stofunnar er herbergi skv. teikningu - auðvelt að setja upp vegg að nýju). Eldhúsið er parketlagt, með snyrtilegri hvítlakkaðri innréttingu og nýlegum vinnuborðum, raftækjum, vaski og blöndunartækjum. Aðstaða fyrir litla uppþvottavél í innréttingu. Baðherbergið er nýstandsett, flísalagt gólf með hita, innrétting, vegghengt wc, "walk in" sturta og handklæðaofn. Gluggi á baðherbergi. Rúmgott sérþvottahús með glugga, þvottavélum í vinnuhæð og skolvaski. Hjónaherbergið er parketlagt með góðum skápum og þaðan er útgangur á inndregnar suður-svalir. Barnaherbergið er parketlagt. Bílskúrinn er rúmgóður og með gluggum, kalt vatn og rafmagn, hurðaropnari, hitun með affalli, afstúkuð geymsla í enda.
Annað: Húsið er klætt áli á tvær hliðar. Vatnslagnir íbúðar eru endurnýjaðar að hluta. Frárennslislagnir íbúðar (stammi) eru endurnýjaðar. Allt parket er nýlegt harðparket. Sérhiti og ljósleiðari kominn.
Falleg eign á rólegum og góðum stað við nýja miðbæinn, stutt á útivistarsvæðið við Langasand, sundlaug, íþróttamannvirki og alla helstu verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.

Verðsaga
4 þinglýstir kaupsamningarÍ sölu núnaÁsett verð · Miðborg fasteignasala
59.900.000 kr.443 þ./m²
+84,3% á 6 árum
10. febrúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
32.500.000 kr.240 þ./m²
+5,5% á 1 ári
12. nóvember 2019Þinglýstur kaupsamningur
30.800.000 kr.228 þ./m²
+41,3% á 3 árum
18. maí 2016Þinglýstur kaupsamningur
21.800.000 kr.161 þ./m²
+13,5% á 2 árum
24. október 2014Fyrsta sala
19.200.000 kr.142 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Höfðabraut 3
300 Akranes
59.900.000 kr.443 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1961TegundFjölbýlishúsStærð135,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF210090417Fasteignamat55.800.000 kr.Brunabótamat60.790.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 20 myndir
Upp ↑