fasteignasölur.is
Gerplustræti 18
1 af 107

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
  
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 107,3 m2, 3-4ra herbergja endaíbúð á þriðju og efstu hæð (2. hæð frá götu) með sérinngangi af opnum svalagangi við Gerplustræti 18 ásamt bílastæði í bílageymslu. Eignin er skráð 107,3 m2, þar af íbúð 99,5 m2 og sérgeymsla 7,8 m2. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, borðstofu og stofu. Hægt að bæta við svefnherbergi í stofu. Sérgeymsla á jarðhæð. Bílastæði merkt B11 í bílageymslu fylgir eigninni. Stórar svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning, skammt frá skóla og leikskóla. Stutt í náttúruna og fallegar gönguleiðir.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með L-laga innrétting frá HTH. Í innréttingu er blástursofn, helluborð, og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa/borðstofa er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar suðursvalir (15 m2) í suðurátt með fallegu útsýni. Hægt að bæta við 3ja svefnherberginu, sbr. teikningar.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt með innréttingu frá HTH. Walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla á 1. hæð fylgir íbúðinni, 7,8 m2.
Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni, merkt B11. 
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á 1. hæð.

Húsið er hannað og teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar og var byggt af Byggingarfélaginu Bakka ehf. 

Verð 81.900.000 kr.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Mosfellsbæjar
81.900.000 kr.763 þ./m²
+130,7% á 11 árum
23. september 2015Fyrsta sala
35.500.000 kr.331 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Gerplustræti 18

270 Mosfellsbær
81.900.000 kr.763 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2015TegundFjölbýlishúsStærð107,3 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23553242Fasteignamat79.100.000 kr.Brunabótamat62.530.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 107 myndir

Upp ↑