fasteignasölur.is
Húsafell Birkil. 8
1 af 26

Um eignina

Fasteignasalan Miðborg kynnir Birkilundur 8, í Húsafelli, eignarlóð með fasteignanúmer F2334498.

Um er að ræða afar glæsilega og vel staðsetta 1.250 fm. kjarri vaxna eignarlóð ásamt púða og samþykktum teikningum af 127,1 fm. frístundahúsi á einni hæð.  Húsið er teiknað af teiknistofunni TAG með einhalla þaki og skiptist í forstofu, hol/gang, stofur, eldhús, tvö baðherbergi og þrjú svefnherbergi, þar af hjónasvíta með sérbaðherbergi.  Íbúðarhluti hússins er 118,5 fm. og geymsla 8,6 fm.  Húsið er teiknað sem timburhús, en einnig er möguleiki á að reisa húsið úr forsteyptum einingum.  Gert er ráð fyrir gólfhitakerfi í steyptri plötu.  Salarhæð við suðurhlið er ca. 3,9 m.  Gólfsíðir gluggar á suður- og vesturhliðum.

Rafmagn, kalt vatn og hitaveita við lóðarmörk.  Einstakur staður í þessari náttúruparadís sem Húsafell er.  Kjarri vaxið hraun, sundlaug, verslun, hótel og golfvöllur er á svæðinu. 

Stutt á Langjökul, Arnavatnsheiði, að Hraunfossum, Víðgelmi og fleiri náttúruperlum. 

Seljandi hefur möguleika á að reisa húsið fyrir væntanlega kaupendur og afhenda það fullbúið, eða skemmra komið allt eftir óskum kaupenda.

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.

Húsafell Birkil. 8

320 Reykholt (Borgarfirði)
15.900.000 kr.
Sumarhús
TegundSumarhúsStærð0 m²FasteignanúmerF233449819Fasteignamat2.980.000 kr.
Skráð hjá
Miðborg fasteignasala
HeimilisfangSundagörðum 2, 104 ReykjavíkSími533-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑