fasteignasölur.is
Njálsgata 108
1 af 25

Um eignina

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna fallega og einstaklega vel skipulagða 3ja herbergja íbúð við Njálsgötu 108. Vinsæl staðsetning í miðbæ Reykjavíkur.Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Birt stærð eignar samkvæmt HMS er 56 fm þar af er geymsla í risi 1,6 m2. Eignin skiptist í hol, stofu / borðstofu, eldhús, svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Nánari lýsing:

Hol er með parket á gólfi.
Stofa / borðstofa er parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu, helluborði, bakaraofn og ísskáp sem fylgir með. Útgengt út á suður svalir.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, sturtu, spegli og handlaug með skáp.
Svefnherbergi 1 er parket á gólfi með fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket a gólfi og fataskáp.
Sérgeymsla er í risi. Hún er að nokkrum hluta hluta undir súð og er því stærri að gólffleti.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara þar sem hver íbúð er með sínar vélar.
Sameiginlegur skjólgóður garður.

Iðandi mannlíf í miðborg Reykjavíkur allt í kring. Veitingastaðir, kaffihús og Hlemmur Mathöll, Stutt í Klambratún og fallegar gönguleiðir, leik og grunnskóla.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
49.900.000 kr.891 þ./m²
+2,3% á 4 árum
28. febrúar 2023Þinglýstur kaupsamningur
48.800.000 kr.871 þ./m²
+52,5% á 6 árum
8. júní 2017Fyrsta sala
32.000.000 kr.571 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Njálsgata 108

105 Reykjavík
49.900.000 kr.891 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1937TegundFjölbýlishúsStærð56 m²Herbergi3FasteignanúmerF20107958Fasteignamat52.500.000 kr.Brunabótamat30.000.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑