fasteignasölur.is
Perla inv. - Glæsileg íbúð á efri hæð í San Miguel
1 af 72

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir: Glæsileg íbúð á efri hæð í San Miguel

 

Glæsileg 3 svefnherbergja efri hæð í raðhúsi í líflega bænum San Miguel de Salinas.

Íbúðin er 86,85m2 með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhús, borðstofa og stofa í björtu og rúmgóðu alrými þaðan sem gengið er út á svalir. Einnig fylgir íbúðinni stórar þaksvalir með glæsilegu útsýni yfir nærliggjandi svæði sem og aðgangur að sameiginlegu sundlaugarsvæði með fallegri sundlaug og grænum svæðum þar sem kjörið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.

Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl.  Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. 

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

 

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á  https://www.perlainvest.com/ic/soluskra/costa-blanca-su-ur/san-miguel-de-salinas/glaesileg-ibu-a-efri-hae-i-san-miguel-436.html         

Ref: B403  

 

Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla inv. - Glæsileg íbúð á efri hæð í San Miguel

1053 Spánn - Costa Blanca
61.500.000 kr.708 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð86,8 m²Herbergi3FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 72 myndir

Upp ↑