fasteignasölur.is
Hraunsalir 18
1 af 29

Um eignina

Miðbær fasteignasala kynnir sumarhúsið Hraunsali 18 í landi Kerhrauns (Kerengi) Grímsnes-og Grafningshreppi.  Svæðið er lokað með rafmagnshliði, (símahlið).
Húsið er á 5.789 fm lóð, staðsett inni á skipulögðu sumarhúsasvæði í landi í Kerengis í Grímsnes-og Grafningshreppi.
Húsið er 85.4 fm, eða 61.6 fm aðalhús auk 24.0 fm gestahús(geymsla). Þá ér stórt manngegnt milliloft í aðalhúsinu ca. 26 fm. gólfflötur.
Byggingarár 2014, frábært viðhald.


Lýsing á eign: 
Forstofa með fatahengi.
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi. 
Baðherbergi hvít innrétting, flísalögð walk inn sturta. Útgengi út á suður sólpall og heitan pott
Stofan og eldhúsið í sama rými með mikilli lofhæð. Parket á gólfi og útgengi út á sólpall.
Eldhús með hvítri innréttingu og vönduðum tækjum. Stór borðkrókur.
Milliloft er í húsinu ca 26 fm, manngengt með parketi á gólfi og opnanlegu gluggafagi. Góð geymslurými eru í hliðum milliloftsins undir súð.

Gestahús/geymsla: Alls 24 fm. WC en ekki sturta. 
Stór sólpallur umhverfis húsin. Heitur pottur (rafmagnspottur).

Lóðin er eins og áður sagði 5.789 fm kjarri vaxin með glæsilegu útsýni, Búið að planta miklu magni af trjágróðri.
Þá er óðin við hliðina í eigu sömu aðila og fengist keypt. 
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 30.000 á ári.
Þetta er glæsileg eign og vel um gengin. Góð aðkoma og næg bílastæði.

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð,
Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miðbær fasteignasala
58.700.000 kr.686 þ./m²
+73,2% á 5 árum
29. mars 2021Fyrsta sala
33.900.000 kr.396 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hraunsalir 18

805 Selfoss (dreifbýli)
58.700.000 kr.686 þ./m²
Sumarhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2014TegundSumarhúsStærð85,6 m²Herbergi3FasteignanúmerF23445342Fasteignamat71.800.000 kr.Brunabótamat84.000.000 kr.
Skráð hjá
Miðbær fasteignasala
HeimilisfangStarmýri 2, 108 ReykjavíkSími588-3300

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑