fasteignasölur.is
Tangabryggja 15
1 af 25

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 3 herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara við Tangabryggju 15 í Reykjavík. Eignin er skráð 95,9 m2, þar af íbúð 88,7 m2 og geymsla 7,2 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Frábær staðsetning í Bryggjuhverfinu. Stutt í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax


Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og góðum fataskáp. 
Stofa, borðstofa og eldhús mynda alrými íbúðarinnar og eru með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á góðar svalir til suðurs.Í eldhúsi er innbyggður ísskápur og uppþvottavél, blástursofn, helluborð og háfur. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum. 
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi, góðri innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, 'walk-in' sturtuklefa og handklæðaofni.
Þvottahús er með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara 7,2 m2. 
Stæði í lokaðri bílgeymslu í kjallara fylgir íbúðinni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.

Verð kr. 75.900.000
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Mosfellsbæjar
75.900.000 kr.791 þ./m²
+66,8% á 8 árum
22. janúar 2019Fyrsta sala
45.500.000 kr.474 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tangabryggja 15

110 Reykjavík
75.900.000 kr.791 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð95,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23693945Fasteignamat76.550.000 kr.Brunabótamat68.610.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑