fasteignasölur.is
Skipagata 1 íbúð 301
1 af 19

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Skipagata 1 íbúð 301 - Mjög rúmgóð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli í miðbæ Akureyrar með fallegu útsýni - stærð 89,3 m²


Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér geymslu á jarðhæð og sameiginlegt þvottahús.

Nánari lýsing:
Forstofan er með harðparketi á gólfi, opnu fatahengi skápum.
Stofan er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi og fallegu útsýni.
Eldhúsið er með flísum á gólfi, ljósri innréttingu, flísum á milli skápa, borðkrók og þaðan er einnig gengið út á svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði björt og rúmgóð með harðparketi á gólfum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og þiljum á veggjum, ljósri innréttingu með handlaug, vegghengdu wc og sturtuklefa.
Sér geymsla er á jarðhæð og er hún undir stiga. 
Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð.

Annað:
- Eldhús og baðherbergi var endurnýjað árið 2014
- Ný gólfefni voru lögð 2020
- Frábær staðsetning í miðbæ Akureyrar

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skipagata 1 íbúð 301

600 Akureyri
49.900.000 kr.559 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1939TegundFjölbýlishúsStærð89,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21504522Fasteignamat43.700.000 kr.Brunabótamat47.650.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑