fasteignasölur.is
Flúðasel 61
1 af 23

Um eignina

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna til sölu þriggja herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara við Flúðasel 61 í Rvk. Frábær fyrstu kaup. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla. Sólpallur. Eignin er skráð 96,1 fm þar af er geymsla 4,5 fm.  Til afhendingar við kaupsamning. 

** Bókið skoðun HÉR ** 

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: gengið er inn í sameign og niður tröppur að íbúðinni. Í forstofu er góður fataskápur og flísar á gólfi. Úr rúmgóðu holi er gengið í allar vistarverur íbúðar.
Stofa:  er opin við eldhús og hol. Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er á sérafnotareit úr stofu, þar er skjólgóð aflokuð verönd sem snýr í suður. 
Eldhús: opið við stofu og hol. Innrétting með góðu skápaplássi, eldavél, vifta, stæði fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi. Það er án glugga en fyrir liggur samþykki að koma fyrir glugga.
Svefnherbergi: bjart og rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi. 
Svefnherbergi II: samkvæmt teikningu er þetta rými sjónvarpsherbergi. Það er án glugga en fyrir liggur samþykki að koma fyrir glugga. Nýtt í dag sem svefnherbergi. Lofttúða er í herberginu.  
Baðherbergi: Snyrtileg skúffuinnrétting með handlaug ásamt skáp, baðkar m/sturtu, Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: í sameign er sérgeymsla íbúðar og snyrtilegt sameiginlegt þvottahús.
Sólpallur: útgengt er frá stofu á skjólgóðan aflokaða verönd sem snýr í suður. Framan við hann er garður og flott leiksvæði.

Viðhald og endurbætur:
2023 Skólplagnir myndaðar án athugasemda. Vatnsinntak er nýlegt í húsinu.
2024 Húsið allt tekið í gegn að utan, múrviðgerðir, málað, skipt um glugga þar sem það þurfti, þakrennur lagaðar. 

Frábær fyrsta eign á góðum stað í Seljahverfi þar sem stutt er í alla  þjónustu svo sem, skóla, leikskóla og verslun. Skemmtilegar gönguleiðir eru í hverfinu. 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind löggiltur fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Heimili fasteignasala
57.900.000 kr.602 þ./m²
+75,5% á 7 árum
14. október 2019Þinglýstur kaupsamningur
33.000.000 kr.343 þ./m²
+10,7% á 1 ári
17. maí 2018Þinglýstur kaupsamningur
29.800.000 kr.310 þ./m²
+26,8% á 4 árum
28. október 2014Fyrsta sala
23.500.000 kr.245 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Flúðasel 61

109 Reykjavík
57.900.000 kr.602 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1976TegundFjölbýlishúsStærð96,1 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF205659814Fasteignamat58.050.000 kr.Brunabótamat48.600.000 kr.
Skráð hjá
Heimili fasteignasala
HeimilisfangGrensásvegur 3, 2. hæð., 108 ReykjavíkSími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑