fasteignasölur.is
Jaðarsbraut 39
1 af 16

Um eignina

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf  sími 570-4824.

Rúmgóð og björt 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð með fallegu útsýni af suðursvölum til Faxaflóa. Íbúðinni fylgir  enda bílskúr 20,3 fm staðsettur í lengju fyrir framan hús. 
Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi, flísalagt baðherbergi með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði.
Eldhús með eldri málaðri innréttingu og borðkrók. Stofa með útgangi á suðursvalir. 
Á 1. hæð er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, hver með sína vél. Hjóla og vagnageymsla við hliðina. Íbúðinni fylgir einnig 6,4 fm sérgeymsla á 1. hæð. 
Bílastæði á lóð eru malbikuð. Íbúðin er í útleigu og afhendingartími er 3 mánuðir. Bílskúrinn er í útleigu. Bílskúrinn er staðsettur í vesturenda bílskúrslengju, kalt vatn og rafmagn ( talið að járn á þaki bílskúrs hafi verið endurnýjað í kringum 2007). 

Endurbætur á sameign síðustu ár samkvæmt fundargerð ;
1994 Nýtt vatnsinntak, ný vatnslögn upp stigahús og inn í íbúðir.
1999 Einangrun á háalofti.
2000 Varmaskiptir settur upp.
2001 Nýjir dyrasímar 39 og 41.
2002 Bílastæði malbikað.
2003 Eldvarnarhurðir settar upp.
2004 Vatnslögn í bílskúra.
2004 Drenað kringum blokkina.
2004 Þakrennur og niðurfallsrör endurnýjuð.
2005 Ný teppi og sameign máluð.
2007 Þak og gluggar málaðir.
2007 Nýjar svalir.
2012 Heitavatnsaffall leitt í bílskúra.
2017 Skipt um járn á þaki og settir nýir þakkantar á anddyrum.
2020 Anddyri máluð að utan, útihurðar og eitthvað af gluggum.
2021 Nýr dyrasími á 39.
2019-2025 Gluggar og gler endurnýjað að mestu. Gamlir gluggar málaðir hvítir.

Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Valfell Fasteignasala
48.900.000 kr.503 þ./m²
+88,1% á 6 árum
12. mars 2020Þinglýstur kaupsamningur
26.000.000 kr.267 þ./m²
+116,7% á 5 árum
30. október 2014Fyrsta sala
12.000.000 kr.123 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Jaðarsbraut 39

300 Akranes
48.900.000 kr.503 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1955TegundFjölbýlishúsStærð97,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF21009424Fasteignamat42.350.000 kr.Brunabótamat44.160.000 kr.
Skráð hjá
Valfell Fasteignasala
HeimilisfangKirkjubraut 2, 300 AkranesSími570-4824

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑