Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Glæsileg raðhús í El Vergel
Þetta nýja íbúðaverkefni í El Vergel samanstendur af 65 nútímalegum heimilum með áherslu á sjálfbærni, orkunýtingu og þægilegt líf. Í boði eru 2 svefnherbergja íbúðir og raðhús með 2 eða 3 svefnherbergjum.
Verkefnið er hannað með áherslu á að skapa notalegt samfélag þar sem íbúar hafa aðgang að fallegum sameiginlegum svæðum, á meðan hvert heimili býður upp á sitt eigið einkarými bæði innan- og utandyra. Þar eru fallegir garðar og svæði sem henta vel til gönguferða, hjólreiða og útivistar.
Í sameigninni er stór sundlaug, líkamsræktaraðstaða, sauna og félagsaðstaða þar sem hægt er að njóta samveru með fjölskyldu og vinum.
Eitt af því sem gerir verkefnið sérstaklega áhugavert er sameiginlegt strandsvæði við La Almadraba-ströndina í Dénia. Þar hafa íbúar aðgang að sérstöku svæði við ströndina þar sem hægt er að geyma hjól og sjóbúnað, halda viðburði, fara í sturtu eða skella sér í sundlaug eftir dag við sjóinn.
Þetta er frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta afslappaðs lífsstíls við Miðjarðarhafið, með áherslu á útivist, samfélag og nálægð við ströndina.
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/6724/glaesileg-radhus-i-el-vergel/
Ref: NB-62655
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!
Perla Inv. - Glæsileg raðhús í El Vergel
Allar 33 myndir
Upp ↑































