fasteignasölur.is
Eyjafell 19
1 af 120

Um eignina

Miklaborg kynnir: Til sölu glæsilegt 122,1 fm heilsárs sumarhús á óviðjafnanlegum útsýnisstað í Kjósinni. Húsið var nýlega stækkað og endurnýjað að miklu leiti samhliða þeirri stækkun. Húsið skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og búr/geymslu. Heitur pottur er á sólpalli við húsið og snjóbræðsla í bílastæði og gönguleið að húsinu. Um er að ræða eignarland með töluverðum trjágróðri og skemmtilegri útiaðstöðu.


Nánari staðsetning er hér


Hægt er að fá nanari upplýsingar um sölugögn hér


Bókið einkaskoðun hjá Svan Gunnar Sími 697 9300


Nánari lýsing: Bílastæði eru fyrir neðan hús og göngustígur er upp að húsinu sem stendur ofar á lóðinni, bílastæði og göngustígur að húsi er með snjóbræðslu. Komið inn á neðri hæð þar sem tekur við forstofa . Rúmgóð stofa með kamínu og eldhús með fallegri innréttingu. Inn af eldhúsi er rúmgott búr. Inn ganginn á hæðinni eru tvö góð svefnherbergi, þvottahús ásamt fallegu baðherbergi. Á baðherberginu er baðkar, innrétting og upphengt salerni. Útgengi er frá hæðinni út á sólpall bæði frá stofu og gangi þar sem herbergi og baðherbergi eru en heitur pottur er fyrir framan innganginn . Efri hæð með tengingu við stiga úr stofu, komið í rúmgóðan gang sem hægt væri að nota sem sjónvarpshol eða geymslu. Tvö góð svefnherbergi til sitt hvorra hliðanna en annað herbergið er opið í dag fram á gang. Á milli herbergjanna er baðherbergi , þar er innrétting og upphengt salerni, möguleiki er að setja upp sturtu þar sem tengingar eru til staðar. Húsið er stærra að gólffleti vegna þakhalla og er gólfflötur samkvæmt skráningartöflu 139,7 fm. Stór sólpallur er umhverfis húsið með heitum potti. Mjög gott útsýni er einnig frá húsinu.


Lóðin er eignarlóð og er 2.250 fm að stærð. Á lóðinni er töluverður trjágróður. grasflöt og góð útiaðstaða. Gróðurhús með matjurtargarði er þar ásamt hænsnakofa/geymslu og annar geymsluskúr er niður við bílastæðin. Hitaveita er í húsinu og búið að leggja grunnlögn fyrir ljósleiðara. Hleðslustöð fyrir rafbíla við bílastæði. Bílastæði eru rúmgóð með sorptunnuskýli. Eldiviðargeysmla á lóðinni. Geymslur undir sólpalli og undir eldri hlutanum af húsinu. Margir aðilar búa allt árið á svæðinu.


Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.


Húsið hentar vel til búsetu allt árið um kring og nýtur fallegs útsýnis og gróins umhverfis. Einungis hálftíma keyrsla frá Mosfellsbæ.


Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
79.900.000 kr.654 þ./m²
+370,0% á 7 árum
13. maí 2019Þinglýstur kaupsamningur
17.000.000 kr.373 þ./m²
+41,7% á 10 árum
21. nóvember 2008Þinglýstur kaupsamningur
12.000.000 kr.263 þ./m²
−4,0% á 2 árum
26. mars 2007Fyrsta sala
12.500.000 kr.274 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Eyjafell 19

276 Kjós
79.900.000 kr.654 þ./m²
Sumarhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1992TegundSumarhúsStærð122,1 m²Herbergi5InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2085834Fasteignamat80.800.000 kr.Brunabótamat80.050.000 kr.
Skráð hjá
Svan Gunnar GuðlaugssonLöggiltur fasteignasali697-9300 · svan@miklaborg.is
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 120 myndir

Upp ↑