fasteignasölur.is
Vesturbraut 10A
1 af 14

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu fjölbreytt og tekjuskapandi atvinnuhúsnæði sem nýtt hefur verið sem hótel/gistiheimili ásamt iðnaðar- og atvinnurými. Um er að ræða samtals um 1.014 fm. fasteign á tveimur hæðum ásamt pöllum, auk um 170-180 fm atvinnurýmis með óskráðu millilofti.
Húsið er járngrindarhús og stendur á 2.230 fm leigulóð sem samkvæmt eiganda gæti nýst sem byggingarréttur til framtíðar.


Eignin skiptist í þrjár megin einingar og hýsir í dag alls 25 herbergi, 16 salerni og 11 baðherbergi með sturtu, ásamt tveimur eldhúsaðstöðum, móttöku, samverurýmum og veitingasölum. Eignin var öll endurklædd árið 2020 og þá var einnig skipt um glugga.

Eining 1 – Hótel/Gistiheimili:
Fullbúið gistiheimili með 16 herbergjum á tveimur hæðum, átta herbergi á hvorri hæð. Í einingunni eru 12 baðherbergi, þar af sjö með sturtuaðstöðu. Rúmgóður veitingasalur, móttaka og þvottaherbergi fylgja einingunni. Herbergin eru með harðparketi á gólfum og góðri hljóðeinangrun. Baðherbergi eru flísalögð með sturtu og upphengdum salernum. Á neðri hæð er steinteppi á gólfum en harðparket á efri hæð. Gistiaðstaða er fyrir allt að 52 gesti.

Eining 2 – Atvinnu-/iðnaðarrými:
Rúmgott atvinnubil með stórri innkeyrsluhurð, lakkaðri gólfplötu og millilofti. Gólfpláss er um 170-180 fm auk óskráðs millilofts sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Eining 3 – Gisti- og íbúðaraðstaða:
Ní­u svefnherbergi ásamt fimm sameiginlegum baðherbergjum, þar af fjórum með sturtu. Fullbúinn veitingasalur með góðri eldhúsinnréttingu og rúmgóð setustofa með harðparketi á gólfi. Herbergin eru með harðparketi og teppi.   

Um er að ræða eign með fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem horft er til gistiþjónustu, starfsmannahúsnæðis, langtímaleigu eða annarrar atvinnustarfsemi.

Samkvæmt eiganda er möguleiki að leigja herbergin út í langtímaleigu og geta leigjendur haft lögheimili á staðnum.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., netfang: runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
349.000.000 kr.344 þ./m²
+267,4% á 9 árum
5. desember 2017Þinglýstur kaupsamningur
95.000.000 kr.94 þ./m²
+127,1% á 6 árum
26. apríl 2012Fyrsta sala
41.833.000 kr.49 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vesturbraut 10A

230 Reykjanesbær
349.000.000 kr.344 þ./m²
Atvinnuhúsnæði16 bað
Byggingarár1973TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1014,4 m²Herbergi18InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF20911822Fasteignamat115.500.000 kr.Brunabótamat227.900.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑