fasteignasölur.is
Engjavellir 3
1 af 31

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

136,7 fm. íbúð við Engjavelli 3 í Hafnarfirði. Um er að ræða rúmgóða fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi en sérinngangur er inn í eignina af svölum. Eignin er einstaklega vel hönnum með stórum svefnherbergjum og mjög svo rúmgóðri stofu þar sem er gengt á stórar svalir. 
Eignin skiptist í forstofu, rúmgott hjónaherbergi, tvö góð barnaherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Útgengt út á stórar svalir úr borðstofu.


Nánari lýsing: 
Komið inn í flísalagt anddyri með góðu skápaplássi. 
Gangur með parketi á gólfi.
Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi, gott skápapláss.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi og fataskápum.
Eldhús með góðu skápaplássi og fallegri eyju með morgunverðaborði úr graníti. Ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og háfur.
Opið úr eldhúsi í rúmgóða stofu og borðstofu með parketi á gólfi. Stofan og eldhúsið myndar skemmtileg, stórt og bjart fjölskyldurými.
Útgengi úr eldhúsi á 10 fm svalir sem snúa til vesturs. 
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, sturtubaðkar og góð baðinnrétting með vaski. Upphengt wc og handklæðaofn.
Þvotthús innan eignar með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og góðu skápaplássi,flísar á gólfi.
Inn af þvottahúsi er svo geymsla.
Sameiginleg vagna og hjólageymsla.

Góð og vel skipulögð 4 herbergja fjölskylduíbúð á Völlunum í Hafnafirði í grend við leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Hauka að Ásvöllum ásamt allri annari helstu þjónustu eins og matvöruverlsun (Bónus, Krónan, Nettó), apótek, sundlaug, líkamsrækt og fl.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
89.900.000 kr.658 þ./m²
+13,9% á 3 árum
19. apríl 2023Þinglýstur kaupsamningur
78.900.000 kr.577 þ./m²
+46,4% á 3 árum
26. mars 2020Þinglýstur kaupsamningur
53.900.000 kr.394 þ./m²
+22,8% á 3 árum
28. desember 2016Þinglýstur kaupsamningur
43.900.000 kr.321 þ./m²
+21,9% á 1 ári
8. apríl 2016Fyrsta sala
36.000.000 kr.263 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Engjavellir 3

221 Hafnarfjörður
89.900.000 kr.658 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2005TegundFjölbýlishúsStærð136,7 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22760786Fasteignamat88.550.000 kr.Brunabótamat70.650.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑