fasteignasölur.is
Höfðahlíð 2 íbúð 202
1 af 15

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Höfðahlíð 2 íbúð 202 - Nýbygging - Vönduð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð, í nýju fjórbýli í Glerárhverfi - stærð 92,7 m²


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.

* Eignin er staðsteypt, einangruð að utan og klædd með málmklæðningu. Þakplata er úr krosslímdu timbri (CLT).
* Vandaðar innréttingar og fataskápar frá HTH.
* Harðparket og flísar á gólfum.
* Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
* Hljóðdempandi dúkur í loftum allra rýma, að baðherbergi undanskildu. 
* Loft eru tekin upp í eldhúsi og stofu.

* Innfelld lýsing í loftum.
* Gólfhiti er í allri íbúðinni og handklæðaofn á baðherberginu.
* Loftskiptikerfi
* Hvítar innihurðar
* Áætlaður afhendingartími eignar er lok september 2026


Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum fataskáp
Í eldhúsi er góð eldunareyja með helluborði og vönduð innrétting með innfelldum ísskáp með frysti og uppþvottavél sem fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, þar sem harðparket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og útgengt á steypta verönd, 7,6 m² að stærð skv. teikningum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Vönduð innrétting með handlaug, vegghengt wc, walk-in sturta og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og vönduðum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,8 m² og 12,6 m².
Geymsla/þvottahús er með flísum á gólfi, bekk með skolvaska og er skv. teikningum 4,0 m² að stærð.

Annað
- Sameiginlegt inntaksrými og vagnageymsla fyrir húsið er milli íbúða á neðri hæð.
- Hitalagnir eru í gönguleið að húsi, tröppum og stigapalli. 
- Sex bílastæði eru á lóðinni. Hver eign hefur eitt bílastæði með til sérafnota. Staurar fyrir rafhleðslu verðar settur upp, dregið í og tengt við hverja íbúð.
- Byggingarverktaki: BB byggingar ehf.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Höfðahlíð 2 íbúð 202

603 Akureyri (utan Glerár)
75.900.000 kr.819 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2026TegundFjölbýlishúsStærð92,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25406693Fasteignamat27.250.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑