fasteignasölur.is
Stefnisvogur 38
1 af 34

Um eignina

Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: Fallega og vel skipulagða 3. herbergja íbúð á 2.hæð með rúmgóðum svölum í suðvestur með sjávarútsýni og yfir smábáta höfnina Snarfara ásamt stæði í bílakjallara. 

Íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum og með Quartz borðplötum, bæði inn í eldhúsi og inn á baðherbergi. Vönduð heimilistæki, innfeld tæki, ísskápur, frystir og uppþvottavél.
Gólfhiti er í íbúðinni með sér dreifikistu. Sjálfstæð loftræsti samstaða er í íbúðinni með inn- og útkasti á lofti.
Eignin er tilbúin til afhendingar 15 okt 2026

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Nánar um eign: Íbúð nr. 221, Stefnisvogur: 38
Eignin er þriggja herbergja íbúð á 2. hæð, birt stærð 85,4 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara, birt stærð 8,5 fm. 
Birt heildarstærð séreignar er 93,9 fm.
Íbúðinni fylgir sér stæði í bílakjallara.
 
Upplýsingar um Stefnisvog 38-46
Húsið skilast fullbúið að utan. Húsið er steinsteypt, einangrað og klædd að utan með áli. Þak er viðsnúið, steypt með halla, tvöfalt lag er af eldsoðnum tjörupappa, einangrað ofan á plötu og ferging. Yfirborð svala er klætt með timbri eða hellulagt.
Gluggakerfi íbúða er frá BYKO og er ál-tré. Inngangshurðir í stigaganga eru álhurðir. Sameiginleg lóð verður frágengin skv. teikningum lóðahönnuða. Snjóbræðsla er í helstu göngustígum á lóð.
Bílageymsla er með tengimöguleikum fyrir hleðslu rafbíla. Geymsla auk afnotaréttar af hjóla- og vagnageymslu. 
 
Að verkinu standa eftirtaldir aðilar:
Byggingaraðili hússins er Reir verk ehf.
Arkitekt og aðalhönnuður er Arkþing Nordic ehf.
Verkfræðihönnun, Vektor Verkfræðistofa ehf. sá um hönnun á burðarvirki og lögnum.
Mannvit sá um hljóðhönnun.
Brunahönnun sá um brunahönnun.
Raflagnahönnun, Raflax sá um raflagna- og lýsingahönnun.
 
Nánari upplýsingar veita:
Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 / maggi@remax.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi er almennt 0,8%, en 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða og 1.6% ef um lögaðila er að ræða. Miðast af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 

Stefnisvogur 38

104 Reykjavík
94.900.000 kr.1.011 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
TegundFjölbýlishúsStærð93,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25353791Fasteignamat36.400.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑