fasteignasölur.is
Áshamrar
1 af 39

Um eignina

***Áshamar, 851 Hella***
 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Áshamra. Fallegur sælureitur í sveitinni. Um er að ræða einbýlishús, gestahús og 26,1 hektari af landi. Einbýlið er skráð skv HMS 152,0 fm og er fjögurra herbergja. Gestahúsin eru þrjú (nánari lýsing hérna neðar). Gríðarlega fallegt útsýni er frá bæjarhlaðinu.
 
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 
Nánari lýsing:

Einbýlishúsið:
Komið er inn í opna forstofu, þaðan er gengið inn í fallegt alrími með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsið er með rúmgóðri, hvítri og fallegri innréttingu. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi. Úr alrími er gengið inn í hjónaherbergi, í svefnherbergisholi eru þrjú barnaherbergi og baðherbergi. Baðherbergið er með upphengdu salerni, innréttingu, golf sturtu og hurð út í garð.  Þvottahúsið er mjög rúmgott, með plássi fyrir þvottavélar og þurkara, ásamt því að hurð er út í garð.
Gestahús 1:
Húsið er byggt úr timbri og er með rúmgóðum palli. Eignin er skráð skv HMS 41,6 fm. Komið er inn í anddyri og þaðan inn í opið alrími með eldhús aðstöðu og setustofu. Eitt svefnherbergi eru í húsinu ásamt svefnlofti. Svefnpláss er fyrir sex manns. Baðherbergið er með salerni og sturtu.
Gestahús 2:
Húsið er byggt úr timbri með palli fyrir framan. Eignin er skráð skv HMS 29,9 fm. Að innan er eldhús krókur, svefnaðstaða fyrir tvo-þrjá og baðherbergi með salerni og sturtuklefa.
Gestahús 3:
Húsið er byggt úr timbri með palli fyrir framan. Eignin er skráð skv. HMS 23,8 fm. . Að innan er eldhús krókur, svefnaðstaða fyrir tvo-þrjá og baðherbergi með salerni og sturtuklefa.
  • Jörðin sjálf er vel staðsett í Ásahreppi, gott aðgengi og ekki langt að fara frá þjóðveginum sem er gott fyrir áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu.
  • Búið er að gera og fá samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir jörðina. Þar er leyfi til að fjölga ferðaþjónustu húsum um fjögur, ásamt því að byggja hesthús og reiðhöll samtals að stærð 800fm. Einnig er heimild til að byggja töluvert við einbýlishúsið.
  • Ásahreppur er að vinna í nýju reiðvega skipulagi fyrir sveitafélagið og á næstunni mun reiðvegur vera lagður við Steinslækinn fyrir neðan bæinn og mun tenging vera leyfð inn á Áshamra land. Við þetta munu reiðleiðir vera frábærar við eignina.
  • Veiðiréttur í Steinslæk fylgir með.

Eign sem býður upp á virkilega mikla möguleika.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignaland
189.000.000 kr.764 þ./m²
+525,8% á 8 árum
7. desember 2018Fyrsta sala
30.200.000 kr.726 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Áshamrar

851 Hella (dreifbýli)
189.000.000 kr.764 þ./m²
Jörð/Lóð6 svefn · 5 bað
TegundJörð/LóðStærð247,3 m²Herbergi6InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF21982272Fasteignamat70.786.000 kr.Brunabótamat126.450.000 kr.
Skráð hjá
Eignaland
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑