fasteignasölur.is
Austurkór 65
1 af 30

Um eignina

Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Austurkór 65, 203 Kópavogur.
  • Falleg þriggja til fjögura herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð í þessu vinsæla fjölbýli.
  • Skv. skráningu HMS er eignin 115,3fm.
  • Eigninni fylgir sér afnotaréttur af verönd og grasflöt við vestur hlið hússins(baklóð), 5,8 m út frá vegg, samt. 48,7fm.

Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 
Nánari lýsing:

Forstofa er flísalögð með fataskáp með fatahengi.
Hol er með flísum á gólfi.
Eldhús myndar opið rými með stofu, flísar á gólfi. Eldhús með rúmgóðri innréttingu með eyju, helluborð og ofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél.Úr stofu er útgengt út á hellulagða verönd.
Svefnherbergin eru tvö rúmgóð með fataskápum og flísum á gólfi. Lítið mál er að koma þriðja svefnherberginu fyrir aftur, sem tekið var niður til að stækka stofu.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni, vaskaskáp, baðkari og sturtuklefa.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu með skolvask og tengjum.
Sérgeymsla er í sameign skráð 8,8 m2. 

Í sameign er rúmgóð vagna- og hjólageymsla. Í húsinu er lyfta. Það er snjóbræðsla í stéttum umhverfis húsið.

Vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning í Kópavogi, stutt í þjónustu, sundlaug, leikskóla, grunnskóla, íþróttir og verslanir.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignaland
89.900.000 kr.780 þ./m²
+12,4% á 3 árum
4. desember 2023Þinglýstur kaupsamningur
80.000.000 kr.694 þ./m²
+122,2% á 9 árum
21. maí 2015Fyrsta sala
36.000.000 kr.312 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Austurkór 65

203 Kópavogur
89.900.000 kr.780 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2014TegundFjölbýlishúsStærð115,3 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23487993Fasteignamat80.100.000 kr.Brunabótamat68.000.000 kr.
Skráð hjá
Eignaland
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑