fasteignasölur.is
Andrésbrunnur 5
1 af 23

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali - Beinn sími 450 0000 kynnir: STÓR SÓLPALLUR OG BÍLSKÚR. Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með stórum sólpalli á jarðhæð í snyrtilegu lyftuhúsi við Andrésbrunn 5 í Grafarholti. Eignin er með stórum sólpalli sem snýr í suður með útgengi út í garð, sérgeymslu og hlutdeild í lokuðum bílskúr. Gegnheilt flæðandi eikarparket lagt árið 2025 er í allri íbúðinni nema á flísalögðum svæðum sem eru geymsla, þvottahús og baðherbergi. Sæmundarskóli ásamt leikskólunum Geislabaugi og Reynisholti eru í göngufjarlægð. 

Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum.

Samkvæmt HMS er eignin skráð 93,20 fermetrar en eigninni fylgir einnig þriðjungs hluti í uþb. 76 fermetra lokuðum bílskúr sem tilheyrir þremur íbúðum og er ekki innifalinn í skráðri fermetratölu eignarinnar.

Nánari lýsing:
Forstofa: Góð forstofa með fataskáp, hillu og plássi fyrir skóhillu. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Útgengt er út á uþb. 23 fermetra stóran sólpall sem snýr í suður og þaðan beint út í garð.
Eldhús: Falleg viðarinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Helluborð, bakaraofn og vifta. 
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfum. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu með skápum. Klósett og baðkar með sturtu og gleri.
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél, vinnuaðstöðu og skápum.
Geymsla: Rúmgóð sérgeymsla innan íbúðar. Flísar á gólfi. 
Bílskúr: Eigninni fylgir þriðjungs eignarhluti í um 76 fm lokuðum bílskúr sem er sameiginlegur fyrir þrjár íbúðir. Um er að ræða verulegan kost sem býður upp á gott geymslu- og bílastæðarými.
Húsið: Snyrtilegt lyftuhús á vinsælum stað í Grafarholti. Sameign er vel um gengin og umhverfið rólegt og fjölskylduvænt.

Staðsetning: Frábær staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun, þjónustu, fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Grafarholt er eftirsótt hverfi sem hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldur.
Falleg, björt og vel skipulögð eign með stórum suðursólpalli, garði og einstökum aukakosti í formi hlutdeildar í lokuðum bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – 
löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli  -  Verðmat fasteigna  -  Lúxus fasteignir  -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
72.900.000 kr.618 þ./m²
+80,0% á 8 árum
2. ágúst 2018Þinglýstur kaupsamningur
40.500.000 kr.435 þ./m²
+58,8% á 11 árum
28. nóvember 2007Fyrsta sala
25.500.000 kr.274 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Andrésbrunnur 5

113 Reykjavík
72.900.000 kr.618 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundFjölbýlishúsStærð118 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF22627242Fasteignamat70.700.000 kr.Brunabótamat47.300.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑