fasteignasölur.is
Malarskarð 4
1 af 38

Um eignina

Ólafía Ólafsdóttir lgf., og Lögheimili eignamiðlun kynna í einkasölu: FULLBÚIÐ - GLÆSILEGT 2ja hæða parhús við Malarskarð 4 í nýju hverfi í Skarðshlíð, Hafnarfirði.
HÚSIÐ ER ALLS 234,1m2 Á TVEIMUR HÆÐUM OG ÞAR AF ER CA. 50M2 SÉR ÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI SEM SKILAST FULLKLÁRUÐ MEÐ GÓLFEFNUM.
 

HÚSIÐ VERÐUR AFHENT Á BYGGINGARSTIGI 4 Þ.E. FULLKLÁRAÐ HÚS OG MEÐ GRÓFJAFNAÐRI LÓÐ.  EFRI OG NEÐRI HÆÐ ÁSAMT LEIGU-ÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ SKILAST FULLKLÁRAÐ MEÐ INNRÉTTINGUM,TÆKJUM, FLÍSUM OG PARKETI.
  • SÉR LEIGU - ÍBÚÐAREINING Á NEÐRI HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI.   FULLBÚIN ÍBÚРAFHENDIST VIÐ KAUPSAMNING.
  • EFRI HÆÐ OG HLUTI NEÐRI HÆÐAR AFHENDIST FULLBÚIN VIÐ KAUPSAMNING.
  • FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÚS 
  • STUTT Í SKÓLA OG LEIKSKÓLA
Vinsamlegast bókið skoðun í síma: 898 8242 eða á ola@logheimili.is

Ath. þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar. 
Skipting eignar samkvæmt teikningu: stærðir rýma miðast við innanmál.
Heildar stærð eignarinnar er 234,1m2 og þar af er sér íbúð á neðri hæð ca. 50m2 og bílskúr 26,7m2. 
EFRI HÆÐ: samanstendur af bílskúr, forstofu , herbergi, baðherbergi, og alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.  Útgengt er úr borðstofu út á suðursvalir.  Aðal inngangur hússins er á norður hlið. 
Bílskúr: 26,7m2 innbyggður bílskúr.
Forstofa: úr forstofu er aðgengi að bílskúr. Fatahirsla í forstofu.  Flísalagt gólf.
Herbergi: herbergi með fataskáp og parketlögðu gólfi. 
Baðherbergi: með sturtu, salerni og innréttingu með handlaug. Flísalagt í hólf og gólf.
Alrými:  stofa, borðstofa og opið eldhús eru í opnu björtu rými.  Vegleg eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp, ofni, helluborði og uppþvottavél. Granít á borðum innréttingar og eyju. 

NEÐRI HÆÐ: Frá efri hæð er innangengt í hluta eða alla neðri hæðina.
Sjónvarpshol: rúmgott sjónvarpshol í miðju rými.
Baðherbergi: flísalagt baðherbergi, með salerni, frístandandi baðkeri og innréttingu með handlaug.
Þvottarými: rúmgott þvotta / geymslurými með veglegri innréttingu með vaski og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergi: rúmgott  herbergi með fataskáp og parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: með veglegum fataskápum og parket á gólfi. Frá hjónaherbergi er útgengt út á suður-baklóð. 

Í HLUTA NEÐRI HÆÐAR ER SÉR ÍBÚÐAREINING MEÐ SÉR INNGANGI.  
HLUTI SÉR ÍBÚÐAR Á NEÐRI HÆÐ:
íbúðin er fullkláruð og verður skilað með gólfefnum.  
Baðherbergi:  baðherbergi með innréttingu með handlaug, salerni, sturtuklefa og rými fyrir þvottavél.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi: eitt rúmgott svefnherbergi með fataskápum.
Alrými: Stofa: stofa með út gengi út á suður lóð. Eldhús: opið eldhús með innréttingu og eyju með áföstu matborði.  Eldhúsið er hluti af opnu rými inn í stofu. 
Inngangur:  sér inngangur í forstofu með fatahengi. Flísalögð forstofa.
Geymsla: lítil aflokuð geymsla undir stiga.
SJÁ NÁNAR Í SKILALÝSINGU SELJANDA

Nánari upplýsingar veitir Ólafía Ólafsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8988242, tölvupóstur ola@logheimili.is.
 

Malarskarð 4

221 Hafnarfjörður
169.900.000 kr.726 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 3 bað
Byggingarár2024TegundRað-/parhúsStærð234,1 m²Herbergi6InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF251567219Fasteignamat124.150.000 kr.
Skráð hjá
Lögheimili Eignamiðlun ehf.
HeimilisfangHlíðasmári 2, Kópavogi, 201Sími530-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑