fasteignasölur.is
Fannafold 66
1 af 27

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða vel skipulagða og töluvert mikið endurnýjaða þriggja herbergja 109.2 fm íbúð í litlu fjölbýli við Fannafold 66 í Grafarvogi.
Íbúð og öll húseignin í mjög góðu standi og er nýlega búið að mála hús að utan og sameignarhluta.
Bílskúr er í lengju á bílaplani við hús.
ÍBÚÐ GETUR FENGIST AFHENT NOKKUÐ FLJÓTT EFTIR KAUPSAMNING.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 84.8 fm merkt 01-02-03, geymsla er 2.8 fm merkt 01-01-10, samtals 87.6 fm og bílskúr 21.6 fm merktur 02-01-04 alls 109.2 fm.


Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
Davíð Matthíasson lögg.fasteignasali s. 898-1713 eða david@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Forstofu, gang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. 

Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í forstofu af svalagangi.
Gangur þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými og er útgengt 13 fm suður-svalir úr stofu.
Eldhús er rúmgott með nýlegri eldhúsinnréttingu frá Fríform með efri og neðri skápum, Kvars-steinn er í borðplötum í eldhúsi og á vegg milli skápa, nýleg eldhústæki.
Innaf eldhúsi er rúmgott þvottaherbergi með nýlegri innréttingu og er skolvaskur í innréttingu.
Tvö góð svefnherbergi eru við forstofu þegar komið er inn í íbúð, rúmgóðir fataskápar í hjónaherbergi en lítill skápur í barnaherbergi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað og er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, innrétting með skápum og skúffum undir vask, steinn í borðplötu, vegghengt salerni og handklæðaofn á vegg.
Sérgeymsla er á jarðphæð og þar er einnig sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Bílskúr er í bílskúrslengju á plani við hús og er ágætis lofthæð í skúr, opnanlegur gluggi og þá er nýleg rafdrifin bílskúrshurð.
Gólfefni: Eikarparket lagt í fiskibeina-munstur og flísar á gólfum íbúðar. Epoxy á bílskúrsgólfi.
 
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
84.900.000 kr.777 þ./m²
+48,7% á 5 árum
26. ágúst 2021Fyrsta sala
57.100.000 kr.523 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fannafold 66

112 Reykjavík
84.900.000 kr.777 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1988TegundFjölbýlishúsStærð109,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20415273Fasteignamat72.750.000 kr.Brunabótamat57.660.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑