fasteignasölur.is
Hagamelur 28
1 af 18

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna: 

Bjarta og vel skipulagða 78,9 fm. íbúð með sérinngangi við Hagamel 28, Reykjavík.  Íbúðin sjálf er 77,9 fm. og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og 2,6 fm. sérgeymslu og þvottaaðstöðu í sameign. Eignin er staðsett í vinsælu hverfi í Vesturbænum og er örstutt frá Melabúðinni, Melaskóla, Sundlaug Vesturbæjar og Kaffi Vest.  Bókið skoðun: Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is
 
Nánari lýsing:

Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu
Þaðan er gengið er inn í hol með góðu fatahengi þar sem innangengt er inn í aðrar vistarverur.
Eldhús er uppgert, falleg viðarinnrétting með svartri borðplötu, helluborð, háfur og bökunarofn. Í eldhúsinnréttingu er innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir.
Stofa er rúmgóð og björt, í dag nýtt sem stofa og auka svefnherbergi.
Baðherbergi er með sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergin eru tvö, gólf flotuð.
Sérgeymsla er í sameign og sameiginleg þvottaaðstaða.  Stór sameiginlegur garður sem snýr í suður.

Íbúðin og húsið í heild sinni hafa fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Viðhaldssaga:
- Endurnýjun hituveitulagnagrindar og hluta neyslu- og ofnalagna 2023 - annað yfirfarið
- Sprunguviðgerðir og hús málað, þak yfirfarið og skipt um þá glugga sem þurfti 2023
- Sameiginleg rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð að hluta
- Gólf pússað og flotað 2020
- Frárennslislagnir myndaðar í ágúst 2020, fóðraðar
- Þakviðgerðir 2017
- Ný rafmagnstafla í íbúð 2010
- Sprunguviðgerðir og hús málað 2007
 
Það sem þarf líklega að gera fljótlega en er þó ekki samþykkt:
Í húsfélagi hefur verið rætt að endurnýja fljótlega það sem eftir er í sameiginlegri rafmagnstöflu. Áætlaður kostnaður á þessa íbúð um 200.000 kr.
 
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
69.900.000 kr.886 þ./m²
+72,6% á 6 árum
29. desember 2020Fyrsta sala
40.500.000 kr.513 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hagamelur 28

107 Reykjavík
69.900.000 kr.886 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1956TegundFjölbýlishúsStærð78,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20272262Fasteignamat68.150.000 kr.Brunabótamat40.200.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑