Um eignina
Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Til leigu 2.155 m² verslunar- og skrifstofuhúsnæði að meðtalinni sameign við Skeifuna 10 í Reykjavík.Húsnæðið er á þremur hæðum.
1. hæð er 833 m² verslunarhúsnæði með góðri lofthæð. Rýmið er tvískipt, stórt verslunarrými með gólfsíðum gluggum allan hringinn og svo er um 150 m² rými þar sem er kaffistofa og útgengi út á svalir. Í verslunarhluta eru snyrting, kaffikrókur, ræstiherbergi og tæknirými.
2. hæð er 660 m² verslunar- og skrifstofuhúsnæði með aukinni lofthæð í verslunarhluta. Verslunarhlut er um 50% af hæðinni. Á hæðinni er til staðar kaffikrókur, tvær snyrtingar og ræstikompa.
3. hæð er 662 m² skrifstofuhæð. Hæðin skiptist í opin vinnurými, nokkrar skrifstofur og fundarherbergi. Kaffistofa til staðar og þrjár snyrtingar. Gluggar eru allan hringinn.
Sameign er snyrtileg, flísar á gólfi og lyfta á milli hæða til staðar.
Bílakjallari undir húsinu er á tveimur hæðum og er keyrt inn í hann við austuenda hússins. Möguleiki er á að leigja bílastæði í kjallara.
Hjólageymsla og búningsaðstaða er í kjallara.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is
Skeifan 10
108 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð2154,8 m²LyftaJáFasteignanúmerF606472
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
