fasteignasölur.is
Ásvegur 4
1 af 41

Um eignina

Fallegt einbýlishús m. auka íbúð Á EINSTÖKUM ÚTSÝNISSTAÐ á Hvanneyri í Borgarbyggð. - Gistiheimilli er rekið á neðri með tilskyldum leyfum og lítið mál að fá leyfi á efri hæð. 

Tveggja hæða einbýlishús, nú skipt í tvær íbúðir ásamt nýjum 40,8 fm bílskúr.
Mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði bæði langtíma og skammtíma leigu. Lítið mál að breyta bílskúr í íbúð ef vill, lagnir eru til staðar. Frábær fjárfestingarkostur og sem frístundahús. Einnig er hægt að opna á milli hæða, stigi er til staðar og nota sem eina eign.


Húsinu er nú skipt í tvo matshluta og er ein íbúð á hvorri hæð með sameiginlegu þvottahúsi á neðri hæð ásamt geymslum. 
Góð staðsetning og glæsilegt útsýni. Skv. lóðarleigusamningi frá 1998 er lóðin, sem er í eigu ríkissjóðs, 1.342 fermetrar. Stór og opinn garður. 
Efri hæð - timbur, forskalað og klætt að utan. Forstofa ný flísalögð. Stofa og tvö herbergi og gangur með nýju parketi.  Eldhús er flísalagt, snyrtileg innrétting, og granít á borðum.  Búr með hilum inn af eldhúsi. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og máluðum veggjum, sturta. Óskráð háaloft er fyrir ofan sem nýtist sem geymsla.
Neðri hæð - hlaðnir veggir/forskalað og klætt að utan. Tvö herbergi og gangur parketlögð. Eldhús er flísalagt góð eldhúsinnrétting. Stofa er björt og rúmgóð. Baðherbergi, sturta. Sameiginlegt þvottahús er á neðri hæðinni, gólf málað. Geymsla á neðri hæðinni.
Glæsilegt útsýni hvert sem litið er.
Leikskóli á staðnum og Grunnskóli uppí 4. bekk, stutt í Borgarnes og fl. 
Nýr bílskúr 40,8 fm. Bílskúrinn verður klæddur með áli, hurð með rafmagnsopnun.  Möguleiki er að breyta bílskúr í íbúð þar sem allar lagnir eru til staðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali as@hofdi.is, Gsm 895-3000.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Höfði Fasteignasala
79.900.000 kr.402 þ./m²
+105,4% á 4 árum
27. júní 2022Fyrsta sala
38.900.000 kr.247 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Ásvegur 4

311 Borgarnes (dreifbýli)
79.900.000 kr.402 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1960TegundEinbýlishúsStærð198,6 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF210607514Fasteignamat49.850.000 kr.Brunabótamat70.750.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑